7. febrúar 2010 - kl. 15:12
Einn af öflugustu vinnustöðum á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum er Norðlenska á Húsavík. Þar starfa í dag um 46 starfsmenn.Fyrir helgina var allt á fullu enda spengidagurinn framundan. Sjá myndir.
>> lesa meira
6. febrúar 2010 - kl. 12:43
Það var boðið upp á rjúkandi kaffi og meðlæti þegar formaður Framsýnar fór í heimsókn til starfsmanna og heimilismanna í Pálsgarði nú fyrir helgina en þar er rekið sambýli fyrir fatlaða. Vel var tekið á móti gestinum.
>> lesa meira
4. febrúar 2010 - kl. 23:00
Kjötiðnaðarfyrirtækið Viðbót á Húsavík hefur starfað frá því í árslok 2003. Frá þeim tíma hefur starfsemi fyrirtækisins tífaldast. Um þessar mundir starfa 8 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Þegar forsvarsmenn Framsýnar voru þar á ferð í gær var verið að úrbeina stórt og mikið naut frá Hákoni bónda í Árbót.
>> lesa meira
4. febrúar 2010 - kl. 16:25
Í gærdag áttu fulltrúar Framsýnar fundi með sveitarstjórum Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps þeim Tryggva Harðarsyni og Guðrúnu Maríu Valgeirsdóttur. Markmiðið með þessum fundum var að kynna þau verkefni sem við hjá Framsýn erum að vinna í, ásamt samstarfsaðilum okkar, og snúa að málefnum atvinnuleitenda.
>> lesa meira
4. febrúar 2010 - kl. 15:37
Iðnaðarráðuneytið sker niður framlög til Þingeyinga
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að skera niður fjármagn til Vaxtasamnings Norðausturlands um 5 til 6 milljónir eða um 15 til 20% á árinu 2010. Um er að ræða samþykkt loforð til atvinnusköpunar í þingeyjarsýslum. Færa á fjármunina suður til atvinnuuppbyggingar.
>> lesa meira
4. febrúar 2010 - kl. 09:39
Féló lánar stéttarfélögunum starfsmann
Stéttarfélögin hafa samið við Félagsþjónustu Norðurþings um að fá lánaðan starfsmann til að sinna félagsmönnum og öðrum þeim launþegum sem falla undir starfsvið VIRK, Starfsendurhæfingarsjóð. Ágúst Óskarsson mun sinna verkefninu í 30% starfi á Skrifstofu stéttarfélaganna.
>> lesa meira
Tilkynningar
21. janúar 2010 - kl. 09:12
Páskaúthlutun
Umsóknarfrestur til að sækja um íbúð í Reykjavík og orlofshús að Illugastöðum um páskana er til 15. febrúar. Sótt er um á skrifstofu Framsýnar, í síma 464-6600 eða á snabbi@framsyn.is.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 500,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.