Eyðublöð

Neðangreind umsóknareyðublöð er hægt að sækja með því að smella á tengilinn fyrir aftan heiti umsóknareyðublaðsins. Flest eyðublöðin eru á .pdf formi og því þarftu að hafa Acrobat Reader eða sambærilegt forrit sem getur opnað .pdf skjöl. Skilagreinar félagsgjalda eru einnig í .xls formi sem hægt er að fylla út í excel og prenta út. Einnig er hægt að senda þær í tölvupósti á nina@framsyn.is.
Ef þú ert ekki með Acrobat Reader þá geturðu smellt hér og sótt það.

 

Inngöngubeiðnir
Umsóknareyðublað fyrir inngöngu í Framsýn, stéttarfélag[pdf]
Umsóknareyðublað fyrir inngöngu í Þingiðn [pdf]

 

Sjúkrasjóður
Umsóknareyðublað fyrir umsókn úr Sjúkrasjóðum Stéttarfélaganna [pdf]
Vottorð vinnuveitenda vegna umsóknar úr Sjúkrasjóðum Stéttarfélaganna [pdf]

Umsóknareyðublað fyrir umsókn úr Sjúkrasjóði Verkalýðsfélags Þórshafnar [word]

 

Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmenntunarsjóður S.T.H. [pdf]

 

Fræðslusjóðir Framsýnar- stéttarfélags og VÞ

Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks [pdf]
Landsmennt, fræðslusjóður á almennum vinnumarkaði [pdf] [rafrænt]

Sveitamennt, fræðslusjóður starfsfólks sveitarfélaga[pdf] [rafrænt]

Ríkismennt, fræðslusjóður starfsfólks ríkisstofnanna[pdf] [rafrænt]

 

 

Ráðningarsamningar
Almennur ráðningarsamningur [pdf] [word]

Enska/Contract of employment [pdf]

Pólska/Umowa o prace [pdf]

 

Félagsgjöld

Skilagrein vegna félagsgjalda í Framsýn [excel] Frá 1. janúar 2010

Skilagrein vegna félagsgjalda í Framsýn [excel] Janúar -desember 2009

 

Skilagrein vegna félagsgjalda Þingiðnar [excel] Frá 1. janúar 2010

Skilagrein vegna félagsgjalda Þingiðnar [excel] Júní 2008 - desember 2009

Leiðbeiningar fyrir Excel-skilagreinar [doc]

Tilkynningar

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

11. nóvember 2009 - kl. 09:31

Orlofsíbúð í boði á Akureyri

Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.