Hótelgisting á Fosshótelum 2009

Félagsmönnum býðst gisting á Fosshótelum sem staðsett eru í Reykjavík, Reykholti, Húsavík, Dalvík, Laugum, við Hornafjörð, Skaftafelli og Hellu. 
Félagsmenn kaupa gistiávísun á Skrifstofu stéttarfélaganna fyrir uppábúið tveggja manna herbergi með baði og morgunverði fyrir tvo og bóka síðan gistingu. 
Verð fyrir gistinóttina er kr. 6.000 með niðurgreiðslu.  Frítt er fyrir eitt barn undir 12 ára aldri í herbergi með foreldrum.  Aukarúm kostar kr. 4.000 með morgunmat.

Í júní er kr. 5.000 aukagjald fyrir gisitingu í Skaftafelli, Barón og Lind.

Í júlí og ágúst skal greiða með 2 gistimiðum fyrir hverja nótt.

Heimasíða Fosshótela er www.fosshotel.is

Einnig býðst gisting á Grand Hótel Reykjavík í júlí og ágúst en þá er greitt fyrir hverja nótt með tveimur gistimiðum.

Heimasíða Grand Hótels er www.grand.is

 

Upplýsingar um Fosshótel

Fosshótel Baron
Barónsstígur 2-4 (við Skúlagötu), 101 Reykjavík
Sími: 562 3204, Fax 552 4425
Opið allt árið

Fosshótel Baron er 3ja stjörnu hótel sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, aðeins örfáum skrefum frá Laugaveginum og hinum skemmtilega göngustíg sem liggur meðfram sjónum.
Samtals eru 121 herbergi, studio og íbúðir, öll með sturtu/WC, síma, sjónvarpi og þráðlausri internettengingu. Á Fosshóteli Baron er morgunverðarsalur, lyfta, internetaðgangur í móttöku og frítt bílastæði.

******************************************************************

Fosshótel Lind
Rauðarárstígur 18, 105 Reykjavík
Sími 562 3350, Fax 562 3351
Opið allt árið

Fosshótel Lind er notalegt þriggja stjörnu ferðamannahótel. Staðsetning hótelsins er afbragð en það er nálægt Hlemmi og Laugavegi.
Það eru 55 eins og tveggja manna herbergi sem eru með sturtu/WC, flatskjársjónvarpi með innbyggðum DVD spilara, útvarpi og síma. Öryggishólf eru í sumum herbergjunum, en einnig í móttöku. Í boði er þráðlausa internettengingu.

******************************************************************

Fosshótel Suðurgata
Suðurgata 121, 101 Reykjavík
Sími 562 4018, Fax (+354) 562 4001
Opið: Júní - Ágúst

Fosshótel Suðurgata er þægilegt 2ja stjörnu hótel. Það er staðsett á frábærum stað nálægt miðbænum, Reykjavíkurflugvelli, Þjóðminjasafninu og Háskóla Íslands. Margar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu; meðfram sjónum, í Öskjuhlíðina, upp í Perlu og í Nauthólsvíkina svo eitthvað sé nefnt. Hótelið býður upp á einfalda, praktíska gistingu með 42 stórum herbergjum (28-30m ² ). Öll herbergin eru með sjónvarpi og svölum eða verönd. Hótelið og staðsetning þess eru mjög fjölskylduvæn.

******************************************************************

Fosshótel Reykholt
320 Reykholt í Borgarfirði
Sími 435 1260, Fax 435 1206
Opið allt árið

Fosshótel Reykholt er menningartengt 3ja stjörnu ferðamannahótel sem byggir á þríþættu þema: norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og klassískri tónlist.
Eftirfarandi tegundir herbergja eru í boði í Reykholti:
24 stór "Wellness" herbergi með baðkari.
29 herbergi með sturtu, eins manns og tveggja manna.
Fjölskylduherbergi.
Brúðarsvíta Freyju.

********************************************************************

Fosshótel Húsavík
Ketilsbraut 22, 640 Húsavík
Sími 464 1220, Fax 464 2161
Moby Dick Pub: Sími 464 1003
Opið allt árið.

Fosshótel Húsavík er vinalegt og vel búið, notalegt 3ja stjörnu ferðamannahótel. Hótelið er í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina.
Á hótelinu eru 70 herbergi með eftirfarandi tegundum herbergja:
34 herbergi með tveimur einstaklingsrúmum eða einu hjónarúmi.
10 herbergi með sjávarsýn.
26 úrvals herbergi með “king size" rúmum.
Á hótelinu er rekinn veitingastaður og bar. Einnig er móttakan opin allan sólarhringinn og við hana er hægt að fá aðgang að interneti. Í húsinu eru sérhönnuð herbergi fyrir fatlaða og einnig er lyfta.

*********************************************************************

Fosshótel Dalvík
Skíðabraut 18, 620 Dalvík
Sími 466 3395, Fax 466 3396
Opið allt árið.

Fosshótel Dalvík er nýtt og þægilegt ferðamannahótel á góðum stað á Dalvík í Eyjafirði. Á hótelinu eru 25 herbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi, síma, þráðlausri internet tengingu og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess býður hótelið upp á 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og/salernis aðstöðu auk sameiginlegs eldhúss sem að kemur sér vel fyrir svefnpokagistingar og þá sem vilja ferðast ódýrt.

**********************************************************************

Fosshótel Laugar
650 Laugar
Sími 464 6300, Fax 562 4001
Opið: Júní - Ágúst

Fosshótel Laugar er notalegt 2/3 stjörnu ferðamannahótel, opið á sumrin. Á veturna er hluti hótelsins nýtt undir heimavist Framhaldsskólans á Laugum.
Herbergi án baðs og svefnpokapláss eru látlaus en herbergi með baði eru frekar rúmgóð.
Þar eru 50 herbergi með baði og síma, 22 herbergi án baðs og svefnpokapláss. Einnig er á hótelinu veitingastaður, bar, tveir morgunverðarsalir og innisundlaug.

**********************************************************************

Fosshótel Vatnajökull
781 Hornafjörður
Sími 478 2555, Fax 562 4001
Opið: Maí - September

Fosshótel Vatnajökull er vinsælt og notalegt ferðamannahótel. Þar er að finna sjónvarpsstofu, bar og veitingastað með útsýni yfir jökulinn þar sem gott er að slaka á eftir ævintýri dagsins.
Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Vatnajökli:
26 herbergi með baði, sjónvarpi og síma.
Herbergi með jökla-útsýni.

***********************************************************************

Fosshótel Skaftafell
Freysnesi - 785 Öræfi
Sími: 478 1945, Fax : 478 1846
Opið Mars - Október

Fosshótel Skaftafell er huggulegt þriggja stjörnu ferðamannahótel á einum af fallegustu stöðum Íslands.
Fosshótel Skaftafell er umvafið jöklum með töfrandi útsýni yfir Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands. Náttúran og landslagið umhverfis hótelið er stórbrotið og einstakt. Hótelið sem er við hringveginn, er í um 330 km frá Reykjavík, er mikil paradís fyrir náttúruunnendur.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Skaftafelli:
63 einföld en góð hótelherbergi með sturtu/salerni, gervihnattasjónvarpi, síma og þráðlausri internettengingu.
Öll herbergin eru á jarðhæð í fjórum mismunandi byggingum með stórkostlegu jöklaútsýni.

*************************************************************************

Fosshótel Mosfell
Þrúðvangur 6, 850 Hella
Phone (+354) 487 5828, Fax (+354) 562 4001
Opið Júní - Ágúst

Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar, morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa,
aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

**************************************************************************

 

Tilkynningar

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

11. nóvember 2009 - kl. 09:31

Orlofsíbúð í boði á Akureyri

Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.