4. febrúar 2010 - kl. 15:37

Iðnaðarráðuneytið sker niður framlög til Þingeyinga

Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að skera niður fjármagn til Vaxtasamnings Norðausturlands um 5 til 6 milljónir eða um 15 til 20% á árinu 2010. Um er að ræða samþykkt loforð til atvinnusköpunar í þingeyjarsýslum. Samkvæmt upplýsingum Framsýnar- stéttarfélags hefur iðnaðarráðuneytið ákveðið að bæta Suðurnesjunum við í vaxtarsamningana án þess að heildarpotturinn verði stækkaður. Þessi vinnubrögð eru forkastanleg, sjá meðfylgjandi bréf um málið frá Framsýn til iðnaðarráðherra.

Framsýn hefur verið í sambandi við þingmenn og ráðherra kjördæmisins og skorað á þá að koma í veg fyrir þetta. Það ætti ekki að vera erfitt fyrir þá, vilji þeir standa undir nafni, þar sem um samþykktar fjárveitingar er um að ræða út þetta ár.

Að sjálfsögðu er það hið besta mál að gerður verði vaxtasamningur fyrir Suðurnesin en að fjármunir séu teknir frá okkur til að svo geti orðið er afar undarlegt, svo ekki sé meira sagt. Þáverandi iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson tók sérstaklega fram þegar samningarnir voru undirritaðir að frumkvæði og hugmyndir yrðu að koma af svæðinu, en treysta mætti því að góðar hugmyndir myndu fá brautargengi af hálfu opinberra aðila. Í ljósi þessara orða er með ólíkindum að núverandi iðnaðarráðherra ætli að skera niður samþykktar fjárveitingar og færa þær á Suðurnesin. Það er ekki nóg með að aðrar reglur virðast gilda þar varðandi umhverfismat en gilda hér fyrir norðan. Til viðbótar á að skera niður peninga til atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum og færa þá suður á sama svæði. Er þetta nýja Ísland? Vitað er að Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hefur einnig gert athugsemdir við ákvörðun Iðnaðarráðuneytisins.

Iðnaðarráðuneytið
Katrín Júlíusdóttir
Arnarhváli
150 Reykjavík

Húsavík 29. janúar 2010
Varðar vanefndir á framlögum til Vaxtasamnings Norðausturlands

Vaxtasamningur Norðausturlands var undirritaður í ársbyrjun 2008 milli Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga fh. svæðisins og iðnaðarráðuneytisins. Þáverandi iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson undirritaði samninginn fh. ráðuneytisins sem var til þriggja ára, 2008-2009-2010.

Hugmynd stjórnvalda með vaxtasamningnum var að ráðstafa til mótvægisaðgerða vegna aflabrests í þorski, samtals um 90 milljónum króna inn á athafnarsvæði atvinnuþróunarfélagsins. Það er 30 milljónir á ári. Iðnaðarráðherra lagði áherslu á það í ávarpi sínu við undirritunina að frumkvæði og hugmyndir yrðu að koma af svæðinu, en treysta mætti því að góðar hugmyndir myndu fá brautargengi af hálfu opinberra aðila.

Vaxtasamningurinn hefur komið Þingeyingum að góðum notum og var þegar byrjað að ráðstafa peningum úr honum til verkefna á árinu 2008 enda ásóknin mikil. Úthlutað var aftur á árinu 2009, sjá eftirfarandi frétt á heimasíðu atvinnuþróunarfélags í október 2009:

Yfir 40 milljónir króna til nýsköpunar- og þróunarverkefna
„Stjórn Vaxtarsamnings Norðausturlands (VAXNA) hefur farið yfir og afgreitt umsóknir um þátttöku í verkefnum. Alls bárust 21 umsókn og samtals var sótt um tæpar 70 milljónir kr. Samþykkt var þátttaka í 10 verkefnum að upphæð samtals rúmlega 20 milljónir kr. Samþykkt var þátttaka í eftirtöldum verkefnum:
• Samstarf safna og sýninga í Þingeyjarsýslum
• Sail Húsavík 2011
• Þingeyska matarbúrið
• Jólasveinarnir í Dimmuborgum - töfraland jólanna
• GEBRIS - samstarfsverkefni á svæðinu austan Jökulsár á Fjöllum
• Norðausturland.is - sameiginlegt kynningarstarf á starfssvæðinu
• Upplifum landið - Geotourism
• Nýting íslenskra berja
• Myndun og uppbygging þekkingarklasa í Langanesbyggð
• Stefnumótandi ferðamálaætlun fyrir Norðausturland - framkvæmd verkefna
Samkvæmt ákvæðum vaxtarsamningsins skulu umsækjendur leggja fram a.m.k. sömu upphæð til verkefnanna sem þýðir að gera má ráð fyrir að á næstu misserum verði varið yfir 40 mkr. til þeirra nýsköpunar- og þróunarverkefna sem stjórn VAXNA hefur nú samþykkt þátttöku í.“

Eins og sjá má er mikil ásókn í fjármuni í verkefni sem ætluð eru til að efla byggð og búsetuskilyrði á svæðinu. Það eru því mikil vonbrigði að iðnaðarráðuneytið ætli að skera niður samþykkt framlög vegna ársins 2010 niður um 5 til 6 milljónir eða um 15 til 20%.

Samkvæmt upplýsingum Framsýnar- stéttarfélags hefur iðnaðarráðuneytið ákveðið að bæta Suðurnesjunum við í vaxtarsamningana án þess að heildarpotturinn verði stækkaður. Ráðuneytið beitir nýrri nálgun á skiptingu fjármunanna sem þýðir að skerða á okkar samning um 5-6 milljónir á árinu en einnig verður samningur Eyfirðinga skertur. Norðurland vestra sleppur hins vegar við skerðingu, en þessir þrír samningar gilda allir út árið en verið er að ganga frá nýjum samningum á öðrum svæðum. Það er afar furðulegt að ráðuneytið skuli ganga á gildandi samninga til að koma nýjum samningum inn. Þá liggja heimamenn undir ákveðinni hótun um að ef þeir samþykki ekki skerðinguna, komi til greina að fella samninginn úr gildi sem eru forkastanleg vinnubrögð.

Framsýn er aðili að Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga ásamt Byggðastofnun og sveitarfélögum á svæðinu. Á síðasta fundi stjórnar atvinnuþróunarfélagsins var eftirfarandi bókun gerð:

„Stjórn AÞ átelur það að iðnaðarráðuneytið skuli tilkynna símleiðis um einhliða skerðingu á greiðslum til gildandi vaxtarsamninga á landsbyggðinni. Svo virðist sem megin ástæða skerðingarinnar sé að skapa svigrúm til gerðar nýrra samninga, þar sem m.a. er verið að bæta við einu helsta þenslusvæði landsins á undanförnum árum. Í ljósi þess að tilkynnt er um skerðinguna undir þeim formerkjum að verði ekki á hana fallist sé allt eins líklegt að samningum verði sagt upp, sér stjórnin sér ekki annan kost færan en að hlíta flötum 5 mkr. niðurskurði á ríkisframlagi ársins. Jafnframt telur stjórnin tímabært að þegar verði hafin vinna við heildarendurskoðun á fjármögnun og skipulagi stoðkerfis atvinnu- og byggðamála sem atvinnuþróunarfélögin eru hluti af.“

Framsýn- stéttarfélag gagnrýnir harðlega vinnubrögð Iðnaðarráðuneytisins og hvetur iðnaðarráðherra til að koma í veg fyrir að Iðnaðarráðuneytið standi ekki við gerða samninga sem byggja á að ýta undir nýusköpun í Þingeyjarsýslum. Svona vinnubrögð eru gjörsamlega óþolandi.

Þess er óskað að bréfinu verði svarað sem fyrst.

Virðingarfyllst!

Fh. Framsýnar- stéttarfélags

Aðalsteinn Á. Baldursson

Afrit:
Sveitarstjórnir í Þingeyjarsýslum
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.