7. febrúar 2010 - kl. 15:12

Saltkjöt og baunir, túkall!

Einn af öflugustu vinnustöðum á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum er Norðlenska á Húsavík. Þar starfa í dag um 46 starfsmenn en voru fyrir áramótin um 55 en það er árvist að fækkað sé aðeins starfsmönnum eftir jólavertíðna. Í haust var slátrað um 70 þúsund fjár og gekk sláturtíðin vel að vanda og gekk auk þess ágætlega að manna sláturtíðna. Dregið hefur úr lambakjötssölu sem er afleiðing ástandsins í þjóðfélaginu en Norðlenska á Húsavík sérhæfir sig í vinnslu og sölu á lambakjöti. Mest af kjötinu fer á innanlandsmarkað. Norðlenska flytur einnig út kjöt og reyndar bein líka af skrokkum sem hafa verið úrbeinaðir. Þegar formaður Framsýnar var í skoðunarferð í fyrirtækinu á föstudaginn var allt á fullu enda verið að undirbúa sprengidaginn. Allt kjöt var komið í salt og unnið að því hörðum höndum að pakka lostætinu til þess að landinn geti glaðst á réttum tíma yfir saltkjöti og baunum. Sprengidagurinn er eftir rúma viku, þriðjudaginn 16. febrúar. Að sögn Sigmundar Hreiðarssonar, stöðvarstjóra Norðlenska á Húsavík, afgreiðir fyrirtækið um 95% af öllu sprengidagssaltkjötinu þegar í næstu viku og mesta salan á sér jafnan stað þrjá síðustu dagana fyrir hátíðina sjálfa; á laugardegi, sunnudegi og mánudegi. „Miðað við það magn sem við seljum má áætla að um 150.000 manns borði saltkjöt frá okkur, sem er ekki lítið og ljóst að hlutirnir verða að vera í lagi á þessum mikla lambakjötsdegi,” segir Sigmundur Hreiðarsson. Eftir góða kynningu á starfsemi fyrirtækisins bauð Sigmundur, Aðalsteini formanni Framsýnar í mat, þó ekki í salkjöt heldur dýrindis pottrétt hjá Guðrúnu úr Árholti sem starfar í eldhúsi fyrirtækisins.

 


Sigmundur ræðir hér við Ragnheiði og nafna sinn sem voru í óða önn að ganga frá úrvals saltkjöti í söluumbúðir.


Pétur og Birkir stjórna öllu í naggasalnum.


Hver er með fallegasta brosið? Þrír góðir og tryggir starfsmenn Norðlenska.


Viðgerðarmennirnir, Kristján og Birkir, í sínu heilaga. Það er mikið af verkfærum og sérlega fallegum myndum á veggjunum á verkstæðinu.


Sómakonan, Ingibjörg, starfar á skrifstofunni og heldur utan um hlutina. Inga er á besta aldri og á "smá" afmæli á árinu sem gerir hana aðeins eldri en hún er í dag.


Tekið á því, Sveinn Freysson, veit ekki af því að skera kjötið af beinunum.

<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.