1. maí 2010 - kl. 16:31

Þingeyingar stöndum saman í byggða- og atvinnumálum

Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, ávarpaði hátíðarhöldin á Húsavík í dag sem voru mjög fjölmenn enda boðið upp á frábæra dagskrá. Aðalsteinn gerði að umræðu þau gildi sem viðhöfð voru á Íslandi fyrir hrunið og mikilvægi þess að sveitarfélög á svæðinu vinni vel og betur saman að byggða- og atvinnumálum en þau gera í dag. Þá skoraði hann á atvinnurekendur í Þingeyjarsýslum að mynda með sér hagsmunasamtök þegar í stað, Samtök atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum og koma þannig í lið með sveitarfélögum og stéttarfélögum á svæðinu sem hefðu það að leiðarljósi að berjast fyrir hagsmunum svæðisins. Slagkrafturinn yrði meiri ef atvinnurekendur kæmu að því borði líka. Þá skoraði hann á þau stjórnmálasamtök sem bjóða sig fram í sveitarfélaginu Norðurþingi í vor til að mynda með sér einn níu manna meirihluta eftir kosningarnar. Þannig væri hægt að mynda breiða samstöðu og brú milli ráðandi afla á Alþingi og í sveitafélaginu Norðurþingi á hverjum tíma. Ljóst er að þessar tillögur formannsins eiga eftir að vekja töluverða athygli, það er að skora á atvinnurekendur að mynda með sér samtök og að myndaður verði einn meirihluti eftir kosningarnar í vor í sveitarfélaginu Norðurþingi. Að þessu sinni fór Aðalsteinn ekki inn á málefni verkalýðshreyfingarinnar sem á í vök að verjast um þessar mundir en hann hefur töluvert verið beðinn um að tala um þau mál á opnum fundum undanfarið.

Hér má sjá ávarpið í heild sinni:

Ágætu gestir!!

Verið hjartanlega velkomin hingað í dag á hátíðarsamkomu stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Sérstaklega bíð ég velkomna þá gesti sem hingað eru komnir til að gera okkur glaðan dag. Sumir þeirra létu náttúruhamfarirnar á Suðurlandi ekki hafa áhrif á sig og komu fljúgandi í morgun.

Hér í dag verður að venju boðið upp á metnaðarfulla dagskrá fyrir fólk á öllum aldri enda er mætingin eftir því og örugglega einn sú mesta á Íslandi í dag.

Stéttarfélögin hafa í gegnum tíðina lagt mikið upp úr þessum degi, sem Þingeyingar og aðrir góðir gestir hafa kunnað vel að meta, því samkoman hefur að jafnaði verið fjölmennasti viðburðurinn sem haldinn er í héraðinu á hverju ári. Fyrir þá sem starfa að verkalýðsmálum er það mjög gleðilegt og ekki síður fyrir launþega á svæðinu, sem með því að mæta hér í dag, sína samstöðu með öllum þeim sem vilja berjast fyrir jöfnuði, jafnrétti kynjanna og réttindum mismunandi kynþátta. Þessi dagur sameinar okkur einnig burt séð frá stjórnmálaskoðunum, búsetu eða starfsheitum. Þetta er dagurinn okkar, fólks á öllum aldri og þannig setjum við upp dagskránna hér í dag. Hér má m.a. sjá launþega, öryrkja, ellilífeyrisþega, ungmenni og börn sem mynda fallega umgjörð um baráttudag verkafólks. Æskuna sem er ætlað að erfa landið og taka við af okkur sem eldri eru.

Auðvitað er það þannig að við komum hér á okkar eigin forsendum eins og litla stúlkan sem ætlaði að vera hér í dag og hlýða á dagskrána. Móðir hennar hafði samband við mig í gær og sagði dóttir sína dapra yfir því að komast ekki á hátíðina þar sem fjölskyldan ætlaði í ferðalag og yrði því ekki í bænum 1. maí. Dóttirin hefði sett upp svip og beðið vinsamlegast um að fá að vera eftir hjá frændfólki sínu á Húsavík þar sem hún ætlaði ekki að missa af hátíðinni. Þegar hún var spurð, af hverju hún legði svo mikið upp úr því að vera á hátíðarhöldunum, svaraði hún því til að fyrirmyndin hennar, Jóhanna Guðrún, ætti að syngja. Það voru semsagt ekki ræðurnar sem heilluðu enda stúlkan mjög ung heldur fyrirmyndin, Jóhanna Guðrún, sem stóð sig svo vel í síðustu Eurovision söngkeppni og á sér marga aðdáendur. Eftir strangar samningaviðræður milli þeirra mæðgna komst niðurstaða í málið. Ekki var hægt að hætta við ferðina heldur var samþykkt að fela formanni Framsýnar að króa Jóhönnu Guðrúnu af úti í horni og biðja hana um eiginhandaáritun fyrir litlu stúlkuna. Ég mun að sjálfsögðu reyna það hér á eftir, svo sú stutta verði glöð.

Þetta er gott dæmi um þann mikla áhuga sem er fyrir því að vera virkur þátttakandi á þessum alþjóðlega baráttudegi verkafólks sem haldinn er hátíðlegur um víða veröld.

Kæru gestir!

Á þessum tímamótum skulum við sameinast með samstöðuna að vopni, það er Þingeyingar allir.

Þegar ég settist niður til að semja þetta ávarp ákvað ég að minnast sem minnst á spillingarvöldin og útrásarvíkingana sem tröllriðið hafa þjóðfélaginu og komið okkur í þann mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þeir hafa lengi baðað sig í sviðsljósinu og verið þátttakendur í leikritinu „Hrunadansinum“ sem þeir skrifuðu og leikstýrðu sjálfir á leiksviði græðgi og spillingar. Svo vel tókst til að einn af höfundunum, Sigurður Einarsson fyrrum bankastjóri Kaupþings, þótti standa sig framúrskarandi vel, það vel að hann var verðlaunaður með því að fá fálkaorðuna í barminn frá forseta Íslands.

Á svipuðum tíma var hópur manna hér fyrir norðan sem skrifaði undir áskorun til orðunefndar um að veita Kristjáni Ásgeirssyni félagsmálafrömuði á Húsavík fálkaorðuna fyrir vel unnin störf í þágu Húsvíkinga og þar með Þingeyinga allra. Kristján var áratugi í bæjarstjórn, í forsvari Verkalýðsfélags Húsavíkur og gegndi auk þess fjölda trúnaðarstarfa sem flest voru ólaunuð og unnin af alúð og hugsjón. Það má einnig með sanni segja að fyrsta félagsmálaþjónustan hafi verið rekin á heimili hans á Húsavík án gjaldtöku og annarra kvaða.

Orðunefndin taldi ekki ástæðu til að heiðra Kristján fyrir hans óeigingjörnu störf í þágu samfélagsins og þeirra sem minna mega sín. Það er alþýðu-manninn frá Húsavík. Þess í stað var Sigurður Einarsson boðaður á Bessastaði til að veita Fálkaorðunni viðtöku fyrir framlag hans til þjóðarinnar. Framlag sem byggðist á græðgi og siðblindu sem nú hefur verið opinberuð fyrir þjóðinni og komið okkur í alvarlega skuldaklafa. Að sjálfsögðu á ekki að viðurkenna svona menn. Það á hver helvíta maður að sjá.

Þetta er gott dæmi um þau slæmu gildi sem viðhöfð voru og sprungu beint framan í andlitið á okkur í október 2008. Vonandi upplifum við aldrei þessa tíma aftur og að manngildið verði á ný sett ofar auðgildinu.

Félagar!

Ég tala fyrir breiðri samstöðu Þingeyinga þar sem við höfum einfaldlega ekki efni á öðru. Framundan eru sveitastjórnarkosningar síðar í þessum mánuði. Þá munum við ganga að kjörborðinu og kjósa okkur fulltrúa til að stýra þeim sveitarfélögum þar sem við höfum kjörgengi. Ég hvet fólk til að nýta sér kosningaréttinn og kjósa þá fulltrúa sem þeir treysta best til að vinna að þeim verkefnum sem bíða úrlausnar, sem eru mörg.

Byggðin og atvinnulífið eru í vörn og því hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill þörf og nú að velja gott fólk til starfa. Fólk sem er tilbúið að leggja sitt að mörkum til að standa vörð um hagsmunamál Þingeyinga.

En við kjósendur verðum líka að vera tilbúnir til að styðja við bakið á þeim sem veljast í framvarðasveitina. Þeir þurfa á góðum stuðningi að halda.

Ég vil líka sjá að menn leggi flokkslínurnar til hliðar og að flokkadrættir heyri sögunni til. Hér í sveitarfélaginu Norðurþingi vil ég sjá að þeir níu fulltrúar sem kjörnir verða í sveitarstjórn myndi einn meirihluta. Það verði ekki sérstakur meiri- og minnihluti. Við þurfum á samstöðu að halda og við náum henni best fram með þessari hugmynd. Þannig tryggjum við líka beint samband við sitjandi ríkistjórn á hverjum tíma. Ég tel það beinlínis skaðlegt fyrir sveitarfélög þegar þau hafa ekki beinan aðgang að stjórnvöldum eins og nú er. Það er þegar aðrir flokkar stýra landinu en sveitarfélögum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem það gerist og væntanlega ekki í það síðasta nema menn falli fyrir þeirri hugmynd sem ég nefni hér til skoðunar að myndaður verði einn sterkur meirihluti í vor í sveitarfélaginu Norðurþingi, íbúum til hagsbóta.

Ég vil einnig sjá að atvinnurekendur á svæðinu myndi með sér hagsmuna samtök, Samtök atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum. Því sveitarfélögin, atvinnurekendur og stéttarfélögin hafa saman alla burði til að mynda með sér breiðfylkingu í þeirri baráttu sem framundan er í byggða- og atvinnumálum.

Við þurfum slagkraft til að vinna sigra. Sveitarfélögin minna reglulega á sig enda hafa þau mikilla hagsmuna að gæta og þá hafa stéttarfélögin einnig staðið vaktina.

Framsýn- stéttarfélag hefur t.d. beitt sér síðustu mánuði og ályktað um atvinnumál, lokun Meðferðarheimilisins Árbótar, samgöngumál og niðurskurð hjá embætti sýslumannsins á Húsavík. Allt skiptir þetta máli fyrir samfélagið.

Atvinnurekendur rísið upp og myndið þegar í stað með ykkur samtök og berjist með okkur í öllum þeim framfaramálum sem skipta máli og fleyta okkur inn í framtíðina.

Að lokum:


Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum munu áfram hlúa að félagsmönnum og vinna að öllum þeim framfaramálum sem stuðlað geta að framþróun í héraðinu eða eins og þau hafa gert í tæplega eina öld en á næsta ári verða liðin 100 ár frá stofnun Verkamannafélags Húsavíkur. Væntanlega verður haldinn vegleg afmælisveisla hér að ári.

Höfum það hugfast að það eru forréttindi að fá að búa hér á landsbyggðinni þrátt fyrir að flísast hafi úr berginu. Við höfum svo margt umfram þá sem velja að búa á höfuðborgarsvæðinu. Það er okkar að njóta þess um ókomna tíð og svo eigum við hvert annað sem er ómetanlegur fjársjóður og slær öllu öðru við. Lifið heil.

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.