1. maí 2010 - kl. 18:27

Takk fyrir okkur!

Mikill mannfjöldi var samankominn í Íþróttahöllinni á Húsavík í dag til að fagna baráttudegi verkafólks. Hátt í áttahundruð hátíðargestir nutu þess að þiggja kaffi og köku í boði stéttarfélaganna, hlusta á hátíðarræður í tilefni dagsins og einnig notið þess að hlusta á þau frábæru söngatriði sem boðið var upp á.

Við upphaf hátíðahaldanna flutti Steini Hall Internationalinn af sinni alkunnu snilld og síðan fór Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar í ræðustól og flutti opnunarræðu. Að henni lokinni færði hann Gjafasjóði Hvamms, heimilis aldraðra kr. 400.000,- að gjöf frá stéttarfélögunum til kaupa á hjúkrunarrúmi fyrir heimilismenn á Hvammi. Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri tók við gjöfinni fyrir hönd sjóðsins og þakkaði hann stéttarfélögunum fyrir fallega gjöf.

Ræðumenn dagsins voru Björn Grétar Sveinsson, fyrrum formaður Verkamannasambands Íslands og Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra. Báðir fjölluðu þeir um aðdraganda og afleiðingar efnahagshrunsins auk þess að hvetja verkalýðshreyfinguna til góðra verka. Ræður þeirra Guðna og Björns verða birtar á heimasíðunni á morgun.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisjónstjarna, Garðar Thor Cortes stórsöngvari og Karlakórinn Hreimur sáu um að skemmta hátíðargestunum með söng. Jóhanna Guðrún flutti nokkur lög, þar á meðal lagið: ,,Is it true?“ við mikinn fögnuð allra hátíðargestanna, en þó sérstaklega yngstu kynslóðarinnar. Garðar Thor gladdi svo gestina með fögrum söng. Að lokum steig Karlakórinn Hreimur á stokk til að ljúka dagskránni undir stjórn Aladar Rácz. Lokalagið var svo flutt af Garðari Thor með dyggum stuðningi karlakórsins. Allir söngvararnir voru klappaðir upp og tóku aukalag fyrir gestina, enda ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna.

Þessi hátíð er farinn að laða til sín gesti viða að af landinu enda eflaust sú glæsilegasta sem haldin er á landinu þann 1. maí. Aðstandendur hátíðarinnar vilja koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem komu á hátíðina til að halda upp á þennan alþjóðlega baráttudag í góðum félagsskap.

 


Guðni Ágústsson fór á kostum og skammaðist út í verkalýðshreyfinguna.


Björn Grétar Sveinsson flutti barátturæðu fyrir bættum kjörum.


Hátíðargestirnir skemmtu sér konunglega.


Jóhanna Guðrún flutti lagið Is it true af mikilli innlifun.


Garðar Thor Cortes heillaði salinn með söng sínum.

<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.