7. maí 2010 - kl. 13:09

Miklar umræður á aðalfundi Þingiðnar

Aðalfundur Þingiðnar var haldinn í gær í fundarsal félagsins. Þann 31. desember 2009 voru félagsmenn 91. Karlar voru 89 og konur 2. Hér koma nokkrar upplýsingar sem fram komu í skýrslu stjórnar í gær sem var bæði málefnalegur og góður. Ánægja er með rekstur félagsins.

Félagsgjöld og iðgjöld ársins námu kr. 5.020.023,- sem er 10,5% lækkun frá fyrra ári. Bætur og styrkir úr sjúkrasjóði námu kr. 966.635,- sem er umtalsverð hækkun frá síðasta ári. Félagið er eigandi af 25% hlut í orlofsíbúð að Freyjugötu 10a í Reykjavík með Framsýn, stéttarfélagi. Samkvæmt sameinuðum rekstrar- og efnahagsreikningi nam hreinn tekjuafgangur félagsins kr. 19.724.373,- og eigið fé í árslok nam kr. 169.046.594,- og hefur aukist um 4,2% að raungildi frá fyrra ári.

Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna eru með sameiginlega orlofsnefnd sem vinnur að því að bjóða félagsmönnum upp á marga góða kosti varðandi orlofsdvöl og sífellt er unnið að því að auka framboðið. Félagsmönnum stóð til boða gisting á Hótel Keflavík, Edduhótelum, Fosshótelum og farfuglaheimilum á síðasta ári og verður svo áfram á komandi sumri. Gisti félagsmenn á Hótel Keflavík á leið sinni til útlanda er innifalið í verðinu gisting, morgunverður, geymsla á bíl og akstur á flugvöllinn. Um 30% aukning varð milli ára í umsóknum um orlofshús sem væntanlega má rekja til þess að fólk fór ekki í sama mæli til útlanda í orlof vegna efnahagsástandsins á Íslandi eins og var árið 2008. Þá niðurgreiðir félagið orlofsdvöl félagsmanna í orlofsíbúðum/húsum sem auðveldar fólki að njóta orlofsdvalar með fjölskyldum sínum á Íslandi. Stéttarfélögin hafa áfram til sölu afsláttarmiða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Á síðasta ári spöruðu félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum sér töluverða fjármuni með því að kaupa miðana hjá stéttarfélögunum í stað þess að kaupa þá við Hvalfjarðargöngin. Ekki stendur til að bjóða upp á utanlandsferðir í sumar. Hins vegar er til skoðunar að bjóða upp á stutta ferð hér innanlands. Hvert, er ekki ákveðið.

Þingiðn hefur mikinn áhuga á því að standa fyrir námskeiðum fyrir félagsmenn. Því miður mætti áhugi félagsmanna vera meiri en það þýðir ekki að gefst upp. Allar ábendingar um námskeið eru vel þegnar.

Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk vel á síðasta starfsári. Í dag starfa 3 starfsmenn á skrifstofunni í fullu starfi og einn starfsmaður er í hlutastarfi við ræstingar. Þá eru tveir starfsmenn í tímabundnum verkefnum er snúa að málefnum atvinnuleitenda og VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs. Stéttarfélögin hafa haldið úti öflugri heimasíðu sem fjöldi fólks heimsækir daglega og þá kemur Fréttabréf stéttarfélaganna reglulega út fullt af fróðleik og upplýsingum til félagsmanna. Um þessar mundir er unnið að því að uppfæra heimasíðuna og gera hana aðgengilegri fyrir félagsmenn og aðra þá sem heimsækja hana. Þá er skrifstofan opin níu tíma á dag sem er lengsti opnunartími hjá stéttarfélögum á Íslandi í dag. Skrifstofa stéttarfélaganna er í góðu sambandi við félagsmenn og eru heimsóknir á hana mjög tíðar, auk þess sem stórum hluta starfsins er sinnt í gegnum síma og með heimsóknum á vinnustaði og í skóla. Ekki eru fyrirsjáanlegar frekari breytingar á rekstri skrifstofunnar. Að venju hefur verið ágæt nýting á félagsaðstöðinni enda mikil starfsemi í gangi á vegum stéttarfélaganna. Með vorinu verður væntanlega ráðist í miklar framkvæmdir á húsnæði stéttarfélaganna en þá verður fundarsalurinn tekinn í gegn ásamt því að eldhúsið verður stækkað og útbúnar þrjár nýjar skrifstofur í suðurenda húsnæðisins. Stefnt er að því að vígja nýju aðstöðuna í haust. Ljóst er að með breytingunum mun starfsemi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum eflast enn þá frekar. Þær breytingar voru gerðar um síðustu áramót að sjálfstæðum rekstri Skrifstofu stéttarfélaganna var hætt. Samkomulag varð um það milli aðildarfélaga skrifstofunnar að Framsýn yfirtæki rekstur skrifstofunnar og önnur félög STH og Þingiðn kaupi þess í stað þjónustu af Framsýn. Þetta er bæði gert í sparnaðarskyni og eins til að auðvelda reksturinn. Að lokum má geta þess að Skrifstofa stéttarfélaganna stóð fyrir skoðanakönnun meðal notenda og var öllum sem komu við á skrifstofunni boðið að taka þátt í könnuninni. Alls tóku 140 manns þátt í könnuninni. Spurt var, Ertu ánægð/ur með þjónustu Skrifstofu stéttarfélaganna? JÁ sögðu 138, einn hafði ekki skoðun og einn seðill var auður. Þessi niðurstaða er einfaldlega frábær fyrir félagsmenn Þingiðnar og svona á þetta að vera enda markmið stéttarfélaganna sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna að gera vel við félagsmenn og aðra þá sem leita eftir þjónustu.

Það er ekki laust við að það hafi verið nokkur ófriður á vinnumarkaði á síðasta ári sem rekja má beint til þess óvissuástands sem ríkt hefur í þjóðfélaginu frá bankahruninu. Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið tókust á um endurskoðun kjarasamninga og saman tókust þau á við stjórnvöld og kröfðust aðgerða til að koma hjólum atvinnulífsins í gang á ný og til varð Stöðugleikasáttmálinn. Alþýðusambandið gerði samkomulag við Samtök atvinnulífsins um frestun á gildandi kjarasamningi aðila auk þess að ganga frá svo kölluðum stöðugleikasáttmála við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld í júní 2009. Samkomulagið við Samtök atvinnulífsins fól m.a. í sér ákveðnar breytingar á því hvenær launahækkanirnar kæmu til framkvæmda á síðasta ári. Þá var samið um að launahækkun, sem koma átti til framkvæmda 1. janúar 2010, frestaðist til 1. júní 2010. Kjaramál snúast ekki bara um launakjör heldur ekki síður um þætti er varða afkomu fjölskyldna í landinu. Það þarf að hlúa að fjölskyldunum með raunhæfum aðgerðum í húsnæðis- og lánamálum. Ljóst er að mörg heimili í landinu eiga mjög erfitt um þessar mundir enda efnahagslífið í molum og illa gengur að koma fótum undir það að nýju. Í nýju mati Seðlabanka Íslands á skuldastöðu heimilanna kemur fram að ríflega fimmta hvert heimili hér á landi eða tæp 24.000 heimili eru líkleg til þess að vera í greiðsluvanda þrátt fyrir þær almennu aðgerðir sem stjórnvöld hafa ráðist í til þess að létta á greiðslubyrði heimilanna. Samkvæmt mati bankans eru fjölskyldur með börn helst í vanda. Þriðja hvert einstætt foreldri er líklegt til þess að vera í skuldavanda og 27% hjóna með börn. Áberandi er hversu stór hluti ungs barnafólks sem tók íbúðalán í uppsveiflunni er í vanda, en Seðlabankinn áætlar að tæp 40% heimila í þessum hópi séu líkleg til þess að eiga í greiðsluvanda, sem eru um 3.400 heimili. Flest heimili í vanda eru í tekjulægstu og yngstu aldurshópunum. Þingiðn hefur fullan skilning á því að núverandi ríkistjórn eigi við erfiða stöðu að glíma þar sem efnahagslífið er í rúst. En hlutirnir ganga bara alltof hægt til betri vegar. Auðvitað er eðlilegt að krefjast þess að allt verði gert til að laga stöðu þeirra sem eiga hvað erfiðast um þessar mundir og gripið verði til raunhæfra aðgerða til að ná niður höfuðstólum lána, verðbólgu og almennu verðlagi í landinu. Auknar álögur er ekki leiðin út úr vandanum, þær auka hins vegar á vandan sem er nægur fyrir.

Atvinnuástandið hjá iðnaðarmönnum hefur almennt verið gott miðað við ytri aðstæður og lítið um atvinnuleysi meðal iðnaðarmanna. Framtíðin er hins vegar óljós en vonandi tekst að snúa vörn í sókn í atvinnumálum sem fyrst. Að venju stóðu stéttarfélögin fyrir hátíðarhöldum í Íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí 2009. Hátíðarhöldin tókust að venju frábærlega því um 600 manns komu á hátíðarhöldin. Sama má segja um hátíðarhöldin í ár því um 750 manns komu í höllina sem er glæsilegt.

Eftirtaldir hafa setið í stjórn félagsins: Jónas Kristjánsson, Svandís Sverrisdóttir, Jónmundur Aðalsteinsson, Þórður Aðalsteinsson og Daníel Jónsson yngri. Þá hefur varamaðurinn Kristinn Gunnlaugsson setið nokkra fundi stjórnar vegna forfalla stjórnarmanna.

Félagið gaf Hvammi, heimili aldraðra kr. 100.000,- til kaupa á hjúkrunarrúmi. Heildarkostnaður var kr. 400.000,-. Framsýn og Starfsmannafélagið gáfu einnig í rúminu. Félagið bauð félagsmönnum upp á félagsjakka á góðu verði. Alls voru 40 félagsmenn sem nýttu sér tækifærið og keyptu jakka. Þá ákvað félagið að bjóða félagsmönnum upp á niðurgreidda leikhúsferð í Breiðumýri á sýningu sem Leikfélag Eflingar stendur fyrir.

Skýrslan er að venju ekki tæmandi um starfsemi félagsins því hér hefur aðeins verið farið yfir helstu málaflokka og málefni sem félagið hefur komið að milli aðalfunda. Það er von stjórnarinnar að skýrsla þessi gefi lauslegt yfirlit yfir það helsta í fjölbreyttu félagsstarfi, um leið og hún þakkar félagsmönnum, þeim sem hafa haft trúnaðarstörf fyrir félagið á hendi og starfsmönnum félagsins fyrir gott samstarf og vel unnin störf á árinu. Sérstök ástæða er til að þakka Svandísi og Jónmundi fyrir vel unnin störf í þágu félagsins en þau hafa ákveðið að stiga til hliðar úr stjórn félagsins og gefa ekki kost á sér áfram.

Á fundinum var samþykkt að hafa félagsgjaldið óbreytt milli ára eða 0,7%. Ný stjórn var kjörin til tveggja ára. Jónas Kristjánsson formaður, Vigfús Leifsson varaformaður, Kristinn Gunnlaugsson ritari, Þórður Aðalsteinsson gjaldkeri og Sigurður Hreinsson meðstjórnandi. Þá var til viðbótar ákveðið að hækka styrki sjúkrasjóðs til félagsmanna umtalsert auk þess sem aðalfundurinn samþykkti að ráðast í breytingar á fundaraðstöðu stéttarfélaganna ásamt aðildarfélögum Skrifstofu stéttarfélaganna.

 


Þingiðnarmenn fara yfir sýn mál á fundinum í gær. Fram kom ánægja með reksturinn og starfsemi félagsins.


Snæbjörn gerði grein fyrir reikningum félagsins, Hér er hann ásamt Ólafi sem hlustaði vel þegar Snæbjörn fór yfir helstu tölur úr ársreikningi félagsins.


Jónas Kristjánsson var endurkjörinn sem formaður félagsins enda farsæll í starfi fyrir félagið.


Vigfús Leifsson kom nýr inn í stjórn félagsins. Hann er hér til vinstri. Með honum á myndinni er Jónas Aðalsteinsson.

<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.