7. maí 2010 - kl. 16:51

Fjörugur ársfundur

Ársfundur Stapa, lífeyrissjóðs fór fram í Skjólbrekku í gær og var mæting á fundinn góð. Á dagskrá fundarins voru venjuleg ársfundarstörf.

Í máli framkvæmdastjóra, Kára Arnórs Kárasonar kom fram að árið 2009 var erfitt rekstrarár fyrir Stapa lífeyrissjóð. Afkoma Tryggingadeildar sjóðsins var slök annað árið í röð og er tryggingafræðileg staða deildarinnar erfið. Þrátt fyrir varfærið mat á eignum í árslok 2008 reyndist staðan vera mun verri en gert var ráð fyrir og hafði töluverð áhrif á afkomu ársins 2009. Þá varð sjóðurinn fyrir miklu áfalli um mitt sumar 2009 þegar í ljós kom að lögmannsstofa sem unnið hefur fyrir sjóðinn til margra ára, lýsti kröfum í þrotabú Straums Burðaráss Fjárfestingarbank hf. eftir að kröfulýsingarfrestur var útrunninn. Strax í kjölfarið var sett af stað mikil vinna til að reyna að koma kröfunni að og er enn í dag ekki útséð um hvort það tekst. Hins vegar er mat stjórnenda sjóðsins, að svo mikil óvissa ríki um afdrif kröfunnar, að ekki er annað verjandi en að færa hana niður að fullu. Þessi niðurfærsla hafði veruleg áhrif til hins verra á afkomu sjóðsins á árinu og gerir tryggingafræðilega stöðu sjóðsins lakari um 1-2%. Nafnávöxtun Tryggingadeildar var jákvæð um 1,9% en raunávöxtun neikvæð um 6,2%. Söfn Séreignardeildar komu vel út á árinu og var raunávöxtun Safns I 10,9%, Safns II 11,5% og Safns III 9,2% á árinu.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um starfsemi sjóðsins á heimasíðu Stapa www.stapi.is

Nokkrar umræður urðu um stöðu sjóðsins og kröfu hans á hendur Straumi/Burðarási sem lögfræðingur sjóðsins gleymdi að lýsa. Í umræðum um málefni sjóðsins bauðst Kári Arnór til að fara frá. Lögfræðingur sjóðsins sem gleymdi að lýsa kröfunni upp á 4 milljarða kom á fundinn og gerði grein fyrir málinu. Hann sagði ábyrgðina vera hjá sér, en ekki starfsmönnum sjóðsins hvað þá framkvæmdastjóranum. Bað hann fundarmenn um að snúa gremju sinni að sér en ekki starfsmönnum sjóðsins. Þeir hefðu unnið sitt starf og því ekkert við þá að sakast. Á fundinum í gær kom jafnframt fram að lífeyrissjóðir landsmanna hafa verið að lækka réttindi sjóðsfélaga um 0 – 20%. Hjá Stapa hefur það ekki verið gert fyrr en nú að samþykkt var 5% lækkun frá og með 1. maí 2010. Tillagan var samþykkt samhljóða meðal fundarmanna.

 


Framsýn átti 11 fulltrúa á ársfundinum í gær og Þingiðn einn mann.


Stóra málið, óánægja var meðal fundarmanna um hvernig fór fyrir kröfunni í Straum-Burðarás.


Andrúmsloftið var rafmagnað á fundinum i gær.


Agnes Einarsdóttir sem var fulltrúi Framsýnar á fundinum fór hörðum orðum um stjórn og framkvæmdastjóra sjóðsins og vandaði þeim ekki kveðjurnar.

<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.