8. maí 2010 - kl. 09:43

Rúmlega 60% komnir með vinnu í sumar

Vikuna 19. – 23. apríl framkvæmdi Framsýn- stéttarfélag könnun á atvinnuhorfum nemenda í 10. bekk grunnskóla félagssvæðisins og Framhaldsskólans á Húsavík fyrir komandi sumar. Í ljós kom að 63% nemenda eru nú þegar komin með vinnu fyrir sumarið og af þeim 37% sem ekki eru komnir með vinnu eru 75% sem telja góðar líkur á að fá atvinnu í sumar.

Könnun meðal námsmanna um atvinnuhorfur fyrir sumarið 2010

Eitt af markmiðum stéttarfélaganna er að fylgjast vel með atvinnuhorfum á félagssvæðinu og framvindu mála. Í því sambandi gerðu félögin meðal annars könnun á atvinnuhorfum ungmenna svæðisins fyrir komandi sumar. Svipuð könnun var gerð í fyrra en nú er búið að útvíkka hana um allt félagssvæðið.

Lagðar voru spurningar fyrir nemendur Framhaldsskólans á Húsavík og nemendur 10. bekkjar grunnskóla á félagssvæði Framsýnar. Grunnskólarnir eru; Borgarhólsskóli, Grunnskóli Raufarhafnar, Öxarfjarðarskóli, Hafralækjarskóli, Stórutjarnaskóli, Litlulaugaskóli og Reykjahlíðarskóli. Könnunin stóð yfir vikuna 19. – 23. apríl. Heildarfjöldi nemenda í þessu úrtaki eru 177 einstaklingar. Alls svöruðu 152, eða 85,88%.

Spurt var; „Ertu búin(n) að fá vinnu í sumar?“ „Ef svarið er annað en já. Telur þú þá góðar líkur á að þú fáir vinnu í sumar?“

• Í Framhaldsskólanum á Húsavík voru 60 af 82 nemendum sem svöruðu könnuninni nú þegar komnir með vinnu fyrir sumarið, eða 73% nemenda. Af þeim 22 nemendum sem ekki voru komnir með vinnu voru 16 sem töldu góðar líkur vera á því að fá atvinnu í sumar, eða 73%. Eftir standa 6 nemendur sem ekki eru komnir með vinnu og telja ekki góðar líkur á að fá atvinnu í sumar, eða 27%.
• Í Borgarhólsskóla voru 14 nemendur af þeim 39 sem svöruðu könnuninni komnir með vinnu, eða 36%. Af þeim 25 sem ekki voru komin með vinnu voru 18 nemendur sem töldu góðar líkur á að fá atvinnu í sumar, eða 72%. Eftir standa 7 nemendur sem ekki eru komnir með vinnu og telja ekki góðar líkur á að fá atvinnu í sumar, eða 28%.
• Í Grunnskóla Raufarhafnar var engin af þeim 4 nemendum sem svöruðu könnuninni komin með vinnu, en þó töldu allir 4 góðar líkur á að fá atvinnu í sumar.
• Í Öxarfjarðarskóla voru 3 af 5 nemendum komnir með vinnu, hinir tveir sem ekki voru komnir með vinnu töldu góðar líkur á að þeir fengju atvinnu í sumar.
• Í Hafralækjarskóla voru allir 7 nemendurnir sem tóku þátt í könnuninni komnir með atvinnu í sumar.
• Í Stórutjarnaskóla voru 4 af 5 nemendum sem tóku þátt í könnuninni komnir með vinnu og sá sem ekki var komin með vinnu taldi góðar líkur á að fá atvinnu í sumar.
• Í Litlulaugaskóla voru 2 af 3 nemendum sem tóku þátt í könnuninni komnir með vinnu í sumar. Sá sem ekki var komin með vinnu taldi góðar líkur á að fá atvinnu í sumar.
• Í Reykjahlíðarskóla voru 5 af 7 nemendum komnir með vinnu í sumar. Annar af þeim 2 sem ekki voru komnir með vinnu taldi góðar líkur á að fá atvinnu í sumar, hinn ekki.

Niðurstöður

Í heildina voru 95 af 152 nemendum sem svöruðu könnuninni komnir með vinnu í sumar, eða 63%. Það þýðir að 57 nemendur, eða 37%, eru ekki komnir með vinnu fyrir sumarið. En af þessum 57 nemendum voru 43, eða 75%, sem töldu góðar líkur á að fá atvinnu fyrir sumarið. Þannig að eins og staðan er í dag hafa 14 nemendur ekki fengið vinnu og telja ekki góðar líkur á að fá atvinnu í sumar, eða 25%.

Niðurstaðan er því sú að meirihluti þeirra sem könnunin náði til eru komnir með vinnu í sumar, eða 63%, og jafnframt að af þeim sem ekki eru komnir með vinnu sjá flestir fram á að fá atvinnu í sumar, eða 75%. Horfur í atvinnumálum ungmenna á svæðinu virðast því vera mun betri en búist var við.

Að lokum vill Framsýn- stéttarfélag þakka forsvarsmönnum skólanna sem tóku þátt í könnuninni fyrir að veita aðgengi að nemendum og um leið aðstoð við framkvæmd könnunarinnar.

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.