10. maí 2010 - kl. 08:10
Völsungar fengu silfrið
Völsungur og Víkingur Ólafsvík mættust í gær í úrslitaleik B-deildar lengjubikarsins. Leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri og höfðu nokkrir stuðningsmenn beggja liða séð sér fært um að mæta á leikinn sem átti eftir að verða hin fínasta skemmtun. Í upphafi leiks voru Húsvíkingar sterkari aðilinn án þess þó að ná að skora mark. Það var því eiginlega nokkuð gegn gangi leiksins að Ólafsvíkingar myndu skora fyrsta mark leiksins. Edin Beslija fékk þá sendingu innfyrir vörn Völsunga og lagði boltann af öryggi í markhornið fjær. Það sem eftir var af fyrri hálfleik áttu Víkingar völlinn og voru þeir oft á tíðum mjög nálægt því að auka forystuna í tvö mörk. Steinþór Már Auðunsson, markvörður Völsungs, þurfti oft að taka á honum stóra sínum til að ná að verja skotin frá gestunum gulklæddu og óhætt að segja að sigur Víkings hefði orðið mun stærri ef að Steinþór hefði ekki verið vel á verði allan leikinn. Hann kom þó engum vörnum við þegar Aleksandrs Cekulajev slapp í gegnum vörn Völsungs, lék á Steinþór og var einn gegn auðu markinu. Skot hans fór hins vegar í stöngina en ekki í netið og óhætt að segja að Húsvíkingarnir hafi verið stálheppnir þarna. Eina færi þeirra í hálfleiknum átti Hrannar Björn Steingrímsson en Einar Hjörleifsson varði skot hans glæsilega. Strax í upphafi síðari hálfleiks náði Völsungur að jafna. Þar var á ferðinni Hafþór Mar Aðalgeirsson þegar hann lyfti boltanum yfir Einar Hjörleifsson eftir að Tomasz Luba gaf honum boltann á silfurfati. Tíu mínútum síðar voru gestirnir komnir aftur yfir. Edin Beslija átti þá góðan sprett upp hægri kanntinn, lék á tvo varnarmenn Völsungs áður en hann lagði boltann á Þorstein Már Ragnarsson sem var einn á auðum sjó á markteigshorninu og átti ekki í erfiðleikum með að koma knettinum í netið. Á 75. mínútu varð staðan síðan enn verri fyrir Húsvíkinga. Eftir kæruleysi inn á miðsvæðinu, töpuðu þeir boltanum til Víkinga sem brunuðu fimm upp völlinn gegn eingöngu þremur varnarmönnum Völsungs. Þrír varnarmenn eru ekki nægilega margir til að dekka fimm sóknarmenn og það fór svo að Eldar Masic náði að skora og staða Víkings orðin vænleg. Völsungar reyndu að jafna metin en það gekk brösulega. Þegar innan við mínúta var eftir af venjulegum leiktíma skoraði Hrannar Björn Steingrímsson hins vegar stórglæsilegt mark upp úr þurru þegar hann smurði boltann upp í samskeytin, beint úr aukaspyrnu af tæplega 25 metra færi. Það var hins vegar Víkingur Ó. sem átti lokaorðið í þessum leik. Aleksandrs Cekulajev tók hornspyrnu sem Edin Beslija skallaði beint fyrir lappirnar á Þorsteini Má Ragnarssyni sem skoraði annað mark sitt og innsiglaði öruggan sigur Víkings Ó. og eru þeir því sigurvegarar B-deildar Lengjubikarsins árið 2010. (Heimild, fotbolti.net. Myndir Aðalsteinn Á. Baldursson)



Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.