13. maí 2010 - kl. 17:58

Nýtt nafn: Þekkingarnet Þingeyinga

Ársfundur Þekkingarsetur Þingeyinga fór fram síðasta mánudag. Samkvæmt ársskýrslu Þekkingarsetursins gekk reksturinn vel og var öflugt starf á vegum setursins á umliðnu starfsári. Stéttarfélögin eiga aðild að Þekkingarsetrinu og einn stjórnarmann sem jafnframt er stjórnarformaður. Það bar til tíðinda á fundinum að skipt var um nafn.

Þessar upplýsingar eru teknar af heimasíðu Þekkingarseturs Þingeyinga sem nú ber nafnið Þekkingarnet Þingeyinga. Ákvörðun um að skipta um nafn var tekin fyrir nokkrum mánuðum og kom til framkvæmda nú frá ársfundi þann 10. maí 2010. Þetta nýja heiti endurspeglar starfsemi stofnunarinnar betur en hið eldra. Stofnunin Þekkingarnet Þingeyinga er nefnilega réttnefnt netverk að því leyti að hún starfar á svæðisvísu í stóru og dreifbýlu héraði en ekki í einu „setri“ á föstum punkti. Áfram verður reyndar talað um þekkingarsetur en þó í öðru samhengi. Þannig verður talað um Þekkingarsetrið á Húsavík þegar rætt er um þekkingarstarfsemina í heild á Hafnarstéttinni á Húsavík. Að sama skapi Menntasetrið á Þórshöfn þegar við tölum um mennta-/fræðsluklasann sem nýverið var stofnaður á Þórshöfn. Ekki er loku fyrir það skotið að Þingeyingar geti í framtíðinni myndað fleiri slík þekkingarsetur innan starfssvæðisins. Starfsfólk Þekkingarnetsins óskar þess að íbúar héraðsins og aðrir samstarfsaðilar muni taka þessum breytingum vel. Rekstur og starfsemi stofnunarinnar mun ekki taka neinum breytingum í tilefni af nafnaskiptunum.

Í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga sitja átta menn, tilnefndir til tveggja ára í senn. Eftirfarandi aðilar tilnefna í stjórnina: Norðurþing, Héraðsnefnd Þingeyinga, rannsóknastofnanir í Þingeyjarsýslum (1 mann sameiginlega), framhaldsskólar í Þingeyjarsýslum (1 mann sameiginlega), stéttarfélög í Þingeyjarsýslum, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands.

Eftirtaldir aðilar sitja í stjórn:

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður (stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum)
Dóra Ármannsdóttir (framhaldsskólar í Þingeyjarsýslum)
Margrét Hólm Valsdóttir (rannsóknastofnanir í Þingeyjarsýslum)
Huld Aðalbjarnardóttir (Norðurþing)
Rögnvaldur Ólafsson (Háskóli Íslands)
Rannveig Björnsdóttir (Háskólinn á Akureyri)
Reinhard Reynisson (Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga)
Tryggvi Finnsson (Héraðsnefnd Þingeyinga)

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.