24. maí 2010 - kl. 15:46
Líflegur fundur um atvinnumál
Formaður Framsýnar var gestur í morgun á fundi VG um atvinnu- og byggðamál. Fundurinn var líflegur og stóð yfir í tæpa þrjá tíma.
Í máli Aðalsteins kom fram að við búum í góðu samfélagi sem eigi því miður undir högg að sækja um þessar mundir. Erfitt væri að horfa fram hjá þeirri staðreynt að íbúum hefði fækkað verulega á síðasta áratug. Þeir hefðu verið tæplega 3400 árið 1999 en væru nú um 2900. Þá væru flestar atvinnugreinar í vörn nema helst ferðaþjónustan. Hátt í 200 manns í Þingeyjarsýslum hefði verið án atvinnu í vetur.
Hann sagði mikla þörf fyrir kraftmikla og athafnasama sveitarstjórn næsta kjörtímabil. Sveitarstjórn sem hefði burði og getu til að takast á við þann alvarlega vanda sem blasti við okkur í atvinnu- og byggðamálum. Helst níu manna meirihluta.
Þá sagði Aðalsteinn að það væri löngu tímabært að atvinnurekendur á svæðinu mynduðu með sér hagsmunasamtök, Samtök atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum. Dæmi um sameinginleg mál sem slík samtök gætu barist fyrir væru, samgöngumál, Vaðlaheiðagöng, skattar á fyrirtæki og álögur á flutninga milli landssvæða og atvinnumál s.s. byggingu álvers á Bakka, gagnavera eða gróðurhúsa sem þyrftu á mikilli orku að halda. Allir yrðu að sameinast um að orkan í Þingeyjarsýslum yrði notuð til atvinnuuppbyggingar í héraðinu.
Aðalsteinn kom einnig inn á málefni Atvinnuþróunarfélagsins. Hann sagði mikilvægt að efla starfsemi félagsins með auknum framlögum frá sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum og frá ríkinu. Reksturinn væri erfiður í dag. Þá vildi það alltof oft gleymast að hlúa þyrfti að þeim fyrirtækjum og stofnunum sem væru til staðar og nefndi hann nokkur dæmi máli sínu til stuðnings. Í raun væru það verðmætustu störfin. Þá þyrfti grunngerðin að vera í lagi og það væri óþolandi að fólk þyrfti að segja upp störfum þar sem leikskólapláss væru ekki til staðar eins og raunin væri í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Þá gagnrýndi Aðalsteinn að ekki væri starfandi Atvinnumálanefnd í sveitarfélaginu. Mikilvægt væri að mynda Atvinnumálanefnd eða Fagráð atvinnulífsins. Nefndin/ráðið verði skipuð fulltrúum frá sveitarfélaginu, stéttarfélögum, fyrirtækjum og fræðslustofnunum s.s. Þekkingarneti Þingeyinga eða FSH.
Aðalsteinn sagði það há atvinnuuppbyggingu á svæðinu að ekki væri meiri samstaða milli sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum í ýmsum málum s.s. velferðar og atvinnumálum. Vinna ætti að því á næsta kjörtímabili að sameina öll sveitarfélög í Þingeyjarsýslum í eitt öflugt sveitarfélag.
Þá sagði hann áhyggjuefni ef niðurstaðan yrði sú að selja allan
hlut OH Í Þeistareykjum ehf.
Hann sagði skuldastöðu sveitarfélagsins jafnframt mikið áhyggjuefni sem væri samkvæmt fréttaskýringu Viðskiptablaðsins frá 21. apríl 1,7 milljónir per íbúa og hefði væntanlega aldrei verið hærri.
Niðurstaða:
• Þörf á kraftmikilli sveitarstjórn
• Einn níu manna meirihluti
• Samtök atvinnulífsins verði stofnuð
• Öflug byggðastefna/traust milli stjórnvalda og sveitarstjórnar
• Atvinnuþróunarfélagið verði virkjað betur með hærri framlögum til rekstrar
• Hlúð verði betur að núverandi atvinnustarfsemi
• Atvinnumálanefnd verði starfandi
• Sveitarfélög verði sameinuð í Þingeyjarsýslum
• Horfið verði frá sölu á eignarhluta OH í Þeistareykjum
• Tekist verði á við skuldavanda Norðurþings
Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.