7. júní 2010 - kl. 09:09
Launahækkanir 1. júní
Þann 1. júní hækkuðu laun hjá félagsmönnum í Framsýn- stéttarfélagi, Starfsmannafélagi Húsavíkur og Þingiðn- félagi iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum. Um er að ræða hækkanir sem upphaflega áttu að koma til framkvæmda 1. janúar síðastliðinn en var frestað í tengslum við gerð stöðugleikasáttmálans á síðasta ári. Þessari hækkanir munu gilda út samningstímann sem er í flestum tilfellum til 30. nóvember 2010.
Hækkanir lágmarkstaxta nema almennt kr. 6.500,- en laun allra sem eru við störf á almenna vinnumarkaðnum hækka um a.m.k. 2,5%. Launataxtar hjá ríki og sveitarfélögum hækka einnig þann 1. júní en þær hækkanir koma fyrst og fremst á lægri taxtana. Hæstu launataxtar ríkis og sveitarfélaga taka ekki hækkunum að þessu sinni.
Þann 1. júní hækka einnig lágmarkstekjur sem greiða má fyrir fullt starf en þær verða kr. 165.000,- á mánuði. Það á við um alla launþegar sem orðnir eru 18 ára og hafa starfað a.m.k. fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.
Yfirlit um launahækkanir:
Almennt verkafólk, verslunarfólk, starfsfólk veitinga- og gistihúsa, bifreiðastjórar, aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum, iðnverkafólk og aðrir á almennum vinnumarkaði, launataxtar hækka um kr. 6.500,-
Iðnaðarmenn án sveinsprófs, launataxtar hækka um kr. 9.450,-
Skrifstofufólk og iðnaðarmenn, launataxtar hækka um kr. 10.500,-
Laun þeirra sem fá greitt umfram kauptaxta hækka um 2,5%.
Kauptaxtar frá 1. júní
Laun skv. kjarasamningi Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins sem starfa á almennum markaði frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins sem starfa á veitinga- og gistihúsum frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins sem starfa í verslunum og á skrifstofum frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins frá 1. júní 2010.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.