4. júní 2010 - kl. 09:07

Fundaði með Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Formaður Framsýnar fundaði í gær með Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjórum öðrum ráðuneytismönnum. Umræðuefnið var bann við dragnótaveiðum sem taka átti gildi 7. júní n.k. í nokkrum fjörðum og flóum. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson kom á framfæri óánægju félagsins með ákvörðunina og lagði fram áskorun frá félaginu um að ákvörðunin yrði dregin til baka eða frestað þar sem hún kæmi mjög illa við sjómenn og landverkafólk.

Yfirlýsing

"EFNI: Ákvörðun Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að banna dragnótaveiðar innan tiltekinna svæða í Önundarfirði, Húnafirði/Miðfirði, Skagafirði og Seyðisfirði/Loðmundarfirði.

Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga leggur áherslu á að banni Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um dragnótaveiðar innan tiltekinna svæða í Önundarfirði, Húnafirði/Miðfirði, Skagafirði og Seyðisfirði/Loðmundarfirði verði dregið til baka eða því frestað. Að mati Framsýnar- stéttarfélags mun bannið hafa mjög neikvæð áhrif á atvinnustarfsemi útgerða sem byggja hráefnisöflun sína á dragnótarveiðum. Það á einnig við um þær fiskvinnslur þar sem hráefnið hefur komið til vinnslu. Fyrirvari bannsins er að mati félagsins allt of stuttur og kippir þar með undan rekstrargrundvelli þessara útgerða. Bannið mun auk þess kalla á aukið atvinnuleysi meðal sjómanna og landverkafólks. Slík þróun er að mati félagsins óásættanleg við núverandi aðstæður í atvinnulífinu. Fyrir er atvinnuástandið mjög alvarlegt á Íslandi. Eins og fram kemur í samantekt með reglugerðinni liggja ekki fyrir skýrar sannanir þess efnis að dragnótaveiðar valdi slíkum skaða á sjávarbotnum fjarða að réttlætanlegt sé að mati félagsins að banna alfarið dragnótaveiðar á svo mörgum mikilvægum veiðisvæðum. Framsýn- stéttarfélag leggur til að banninu verði aflétt eða frestað um sinn til að veita útgerðarfyrirtækjum og starfsfólki þeirra frest og tækifæri til að bregðast við fyrirhuguðum breytingum og skipuleggja starfsemi sína með öðrum hætti."

Fundurinn var vinsamlegur og sagðist ráðherra skilja sjónarmið Framsýnar og sagðist tilbúinn að hluta á rödd félagsins og fresta gildistökunni til 1. september. Eftir fundinn gaf ráðherra út eftirfarandi fréttatilkynningu:

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að breyta gildistöku banns við dragnótaveiðum og gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 475/2010. Á fundi með hagsmunaaðilum kom fram það málefnalega sjónarmið að of skammur frestur væri gefinn þeim útgerðum sem málið varðar til að endurskipuleggja veiðar sínar. Því væri eðlilegt að miða gildistöku við nýtt fiskveiðiár. Við þessum tilmælum hefur ráðherra orðið og því mun bann við dragnótaveiðum í sjö fjörðum taka gildi frá og með 1. september 2010 og gilda til 1. september 2015.

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.