16. júní 2010 - kl. 15:43
Forsendur brostnar varðandi stöðugleikasáttmálann
Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við fyrirheit um starfsendurhæfingu í stöðugleikasáttmálanum. Það er engin launung að væntingar miðstjórnar ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að stöðugleikasáttmálanum. Nú er sú von að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni.
Starfsendurhæfing og svikin loforð stjórnvalda
Réttur til starfsendurhæfingar er mikilvægur liður í að efla og treysta stöðu launafólks á vinnumarkaði sem lendir í áföllum vegna veikinda og slysa. Um leið er hún stórt hagsmunamál fyrir samfélagið í heild.
Með yfirlýsingu þáverandi ríkisstjórnar í tengslum við gerð kjarasamninga í febrúar 2008 var gerð mikilvæg sátt á milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu og þróun starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Markmiðið er að tryggja öllu launafólki rétt til starfsendurhæfingar í kjölfar veikinda eða slysa. Jafnframt var gerð sátt um það hvernig fjármagna ætti þetta mikilvæga verkefni með framlagi allra aðila, þar með talið stjórnvalda.
Framangreind sátt var áréttuð af núverandi ríkisstjórn með stöðugleikasáttmálanum í júní á síðasta ári, þar sem fulltrúar aðila vinnumarkaðarins samþykktu verulega lækkun og seinkun á framlögum ríkisins vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs. Þar var jafnframt ákveðið hvernig staðið yrði að málum til að öllu fólki á vinnumarkaði yrði tryggður réttur til starfsendurhæfingar. Samkvæmt samkomulaginu átti að afgreiða málið á Alþingi fyrir lok síðasta árs. Minna má á að meira en 1/3 félagsmanna ASÍ eru nú án þessara réttinda.
Nú liggur fyrir að frumvarp um lögbindingu á greiðsluskyldu atvinnurekenda og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingar verður ekki afgreitt á yfirstandandi þingi og málið allt í uppnámi. Þar með hafa stjórnvöld enn á ný svikið þau loforð sem gefin hafa verið. Með þessari framgöngu eru stjórnvöld og Alþingi beinlínis að koma í veg fyrir að stórir hópar fólks á almennum vinnumarkaði og öryrkjar hjá lífeyrissjóðunum njóti réttar til starfsendurhæfingar.
Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við fyrirheit í stöðugleikasáttmálanum. Það er engin launung að væntingar miðstjórnar ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að þessum svokallaða sáttmála, þrátt fyrir aðgerða- og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahags- og atvinnumálum. Nú er ljóst að sú von er að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni.
Miðstjórn ASÍ ítrekar fyrri hvatningu til aðildarfélaga sinna um að hefja undirbúning að gerð kjarasamninga. Ljóst má vera að framundan eru erfiðar viðræður um gerð nýrra kjarasamninga og barátta fyrir réttindum félagsmanna aðildarfélaga Alþýðusambandsins.
Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.