2. júlí 2010 - kl. 19:40

Við förum með friði

Fréttatilkynning frá Oddi:

Ljóst er að dómur hæstaréttar vegna gengitryggðra lána veldur miklum óróa meðal þjóðarinnar, Almenningi ,heimilunum í landinu finnst aðgerðir stjórnvalda hægfara og hallar undir hagsmuni fjármálafyrirtækjanna, þeirra afla sem settu hér allt á hliðina.

Svo virðist sem stjórnvöld treysta á það að umræður undanfarna daga sé dægurþras og muni lognast út af sökum þreytu okkar á ástandinu, sumarfría og samstöðuleysis heimilanna.

Það ríður á að koma skilaboðum til stjórnvalda, að þau endurskoði stefnu sína og setji í forgang að leiðrétta skuldamál heimila og fyrirtækja í landinu, hvort heldur er hin gengistryggðu lán eða þau verðtryggðu. Í því ferli eiga þau að hafa samráð og samstarf við alla hagsmunaaðila sem að málum koma.

Mér er það ljóst að sumarið er ekki hentugur tími til aðgerða, en engu að síður tel ég mikilvægt að bregðast við. Því hef ég ákveðið að taka mér mótmælastöðu fyrir framan Alþingishúsið n.k. þriðjudag kl. 18.10. og standa þar til 18.30. og hverfa síðan á braut, inn í sumarið.

Ég lít á mótmælastöðu þessa sem þverpólitíska og eini tilgangur hennar er að veita stjórnvöldum aðhald og árétta kröfur heimilanna um réttlæti varðandi lánamál þeirra í kjölfar þess efnahagshruns sem hér gekk yfir.

Það er mitt mat að óþarfi sé að hafa ræðuhöld af þessu tilefni, aðeins að heimilin sýni sig og sýni stjórnvöldum samtakamátt sinn.

Ég hvet alla sem eru sama sinnis og ég, að taka sér stöðu með mér. Verði fjöldi okkar það mikill að hann fylli Austurvöll og helst allar götur þar í kring þá höfum við komið skilaboðum til stjórnvalda um að nú sé komin tími til að beygja af þeirri leið sem þau eru nú á.

Sýnum samstöðu og förum með friði, sýnum stjórnvöldum hver vilji okkar er og mætum á Austurvöll nk, þriðjudag kl. 18.10. ég verð þar- en þú.

Með bestu kveðjum

Oddur Friðriksson
háskólanemi og fyrrverandi
yfirtrúnaðarmaður verkalýðsfélaganna
við Kárahnjúkavirkjun

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.