15. júlí 2010 - kl. 08:43
Framsýn varar við tillögum AGS
"Framsýn, stéttarfélag varar við tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem miða að því að auka enn frekar á skattbyrði fólks á Íslandi með hækkun tekjuskatts og virðisaukaskatts á matvæli. Tillögurnar eru lagðar fram á sama tíma og atvinnuleysi, skattar, almennar álögur og verðlag er í sögulegu hámarki. Samfara þessu hefur kaupmáttur launa hrunið hjá verkafólki.
Það er því alveg ljóst að almenningur á Íslandi sem býr við kröpp kjör hefur ekki burði til að taka á sig frekari byrðar. Það ætti hver heilvita maður að sjá.
Framsýn kallar eftir ábyrgð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í uppbyggingu landsins. Tillögur AGS eiga að miða að endurreisn efnahagslífsins í stað tillagna um óhóflegar álögur sem að stórum hluta færa þjóðina marga áratugi aftur í lífsgæðum.
Framsýn hvetur stjórnvöld til að hunsa hugmyndir sjóðsins og koma þannig í veg fyrir endanlegt hrun heimilanna í landinu. Þess í stað er mikilvægt að stjórnvöld standi við gefin loforð um norræna velferðarstjórn. Höfum það hugfast að sært dýr bítur.
Þannig samþykkt af stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar 15. júlí 2010.
Tilkynningar
24. ágúst 2010 - kl. 13:32
Vinnustaðaskírteini
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.