26. júlí 2010 - kl. 21:34

60 ára og eldri eiga rétt á leiðréttingu!

Ástæða er til að vekja athygli á breytingum sem gerðar voru á lögum um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl. Breytingar þessar fela meðal annars í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Þetta á hins vegar ekki við um þá sem eru yngri en 60 ára þar sem greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum skerða ekki greiðslur til þeirra úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Þeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði á framangreindu tímabili er bent á að sækja um endurútreikning á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Nauðsynlegt er að láta kvittun eða greiðsluyfirlit vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði fylgja með umsókn um endurútreikning. Framangreind breyting var m.a. gerð að kröfu ASÍ og aðildarsamtaka þess. Að vísu lagði ASÍ til að framkvæmdin yrði með þeim hætti að Greiðslustofa Vinnumálastofnunar sæi um framkvæmdina þannig að endurgreiðsla færi fram sjálfkrafa, en að ekki þyrfti að sækja sérstaklega um hana. Á það var hins vegar því miður ekki fallist. Stéttarfélögin vilja koma þessum framangreindum upplýsingum á framfæri við félagsmenn sína sem ætla má að hafi fengið skertar atvinnuleysisbætur vegna töku séreignalífeyris. Þarna getur verið um umtalsverða hagsmuni að ræða fyrir viðkomandi einstaklinga. Umsóknarfrestur er til 1. september nk. Allar frekari upplýsingar um málið og framkvæmdina má fá á vef Vinnumálastofnunar: http://www.vinnumalastofnun.is/frettir/nr/2163/ Þá geta félagsmenn að sjálfsögðu komið við á skrifstofu stéttarfélaganna og fengið frekari upplýsingar.

 


<< til baka

Tilkynningar

24. ágúst 2010 - kl. 13:32

Vinnustaðaskírteini

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
MEIRA

1. júní 2010 - kl. 14:05

Opnunartími í sumar

Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.

19. maí 2010 - kl. 09:28

Orlofsuppbót 2010

Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.

Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-

Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.

8. mars 2010 - kl. 08:22

Ræða formanns Austurvelli

Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti

12. febrúar 2010 - kl. 12:02

Skólastjórnendur athugið

Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.

Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.

Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.

6. janúar 2010 - kl. 11:02

15% afsláttur í Jarðböðin

Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.

17. september 2009 - kl. 07:53

Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn

Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.

2. maí 2007 - kl. 08:17

Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.

7. mars 2007 - kl. 09:42

Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu

Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.