Þú getur sótt Fréttabréf Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum á pdf formi hér að neðan. Til þess að geta skoðað pdf skjöl þarftu forritið Acrobat Reader eða annað sambærilegt forrit. Ef Acrobat Reader er ekki uppsett á tölvunni hjá þér geturðu sótt það hér.
Fréttabréf 2010
1. tbl. 21. árgangur - Febrúar 2010 (1,92 MB)
Fréttabréf 2009
4. tbl. 20. árgangur - Desember 2009 (2,09 MB)
3. tbl. 20. árgangur - Júní 2009 (1,38 MB)
2. tbl. 20. árgangur - Apríl 2009 (1,67 MB)
1. tbl. 20. árgangur - Febrúar 2009 (1,54 MB)
Fréttabréf 2008
4. tbl. 19. árgangur - Desember 2008 (2,63 MB)
3. tbl. 19. árgangur - Júní 2008 (1,22 MB)
2. tbl. 19. árgangur - Mars 2008 (1,85 MB)
1. tbl. 19. árgangur - Febrúar 2008 (1,52 MB)
Fréttabréf 2007
5. tbl. 18. árgangur - Desember 2007 (1,74 MB)
4. tbl. 18. árgangur - Júní 2007 (3,10 MB)
3. tbl. 18. árgangur - Apríl 2007 (2,95 MB)
2. tbl. 18. árgangur - Mars 2007 (4,68 MB)
1. tbl. 18. árgangur - Janúar 2007 (3,13 MB)
Fréttabréf 2006
4. tbl. 17. árgangur - Desember 2006 (4,82 MB)
3. tbl. 17. árgangur - Júlí 2006 (2,72 MB)
2. tbl. 17. árgangur - Apríl 2006 (3,09 MB)
1. tbl. 17. árgangur - Mars 2006 (4,59 MB)
Fréttabréf 2005
5. tbl. 16. árgangur - Desember 2005 (5,30 MB)
4. tbl. 16. árgangur - Október 2005 (2,76 MB)
3. tbl. 16. árgangur - Júní 2005 (3,32 MB)
2. tbl. 16. árgangur - Mars 2005 (3,84 MB)
1. tbl. 16. árgangur - Janúar 2005 (3,93 MB)
Fréttabréf 2004
6. tbl. 15. árgangur - Desember 2004 (5,4 MB)
5. tbl. 15. árgangur - Nóvember 2004 (566 KB)
4. tbl. 15. árgangur - Júlí 2004 (664 KB)
3. tbl. 15. árgangur - Apríl 2004 (441 KB)
2. tbl. 15. árgangur - Mars 2004 (392 KB)
1. tbl. 15. árgangur - Febrúar 2004 (360 KB)
Eldri fréttabréf
5.
tbl. 14. árgangur - Desember 2003 (2.19 MB)
4. tbl. 14. árgangur - Október 2003 (1.37 MB)
3. tbl. 14. árgangur - Maí 2003 (1.24 MB)
2.
tbl. 14. árgangur - Apríl 2003 (1.07 MB)
1. tbl. 14. árgangur - Febrúar 2003 (1.02 MB)
7. tbl. 13. árgangur - Desember 2002 (1.40 MB)
6. tbl. 13. árgangur - Október 2002 (1.09 MB)
5.
tbl. 13. árgangur - Ágúst 2002 (1.03 MB)
Tilkynningar
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.