Tryggingadeild - sama skylda fyrir alla á vinnumarkaði
Félagsmenn í stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslu greiða 4% iðgjald af launum sínum til tryggingardeildar lífeyrissjóðanna og launagreiðandi greiðir 8% mótframlag. Hjá starfsmönnum sveitarfélaga og ríkis er mótframlagið hærra. Þetta skylduiðgjald er hið sama fyrir alla launþega 16 - 70 ára á Íslandi. Iðgjaldið myndar víðtæk réttindi.
Ellilífeyrir
Réttur til ellilífeyris myndast almennt við 67 ára aldur, þó er hægt að seinka töku ellilífeyris til 70 ára eða flýta töku hans til 65 ára.
Almennt ávinna sjóðsfélagar sér ellilífeyri sem er 1,4% af launum, sem þýðir að eftir 45 ára starf er réttur til ellilífeyris 63% af meðallaunum á starfsævinni. Til að halda utan um réttindi eru innborganir umreiknaðar í stig þannig að u.m.b. kr. 64.000 mánaðarlaun gefa 1 stig á ári. Hærri og lægri laun veita hlutfallslega fleiri og færri stig. Við starfslok eru stigin reiknuð saman og margfölduð með 1,4 og fæst þá % sem margfölduð er með kr. 60.000 og verður niðurstaðan þá ellilífeyrir á mánuði m.v. taka hans hefjist við 67 ára aldur.
Dæmi:
Sjóðsfélagi hefur að meðaltali 192.000 á mánuði sem gefur honum 3 stig á ári. Eftir 45 ára starf á hann 135 stig * 1,4 = 189% af kr. 64.000 = kr. 120.960 á mánuði í ellilífeyri sem greiðist til æviloka.
Örorkulífeyrir
Þegar sjóðsfélagi verður fyrir langvarandi heilsutjóni (6 mán. eða lengur) vegna veikinda og/eða slysa og verður fyrir tekjutjóni vegna þess á hann rétt örorkulífeyri. Örorkulífeyri byggir á áunnum réttindum, réttindum til framreiknings sem háður er vissum skilyrðum og hlutfalli örorku sem verður að nema 50% eða meira.
Upphæð örorkulífeyris reiknuð út með sama hætti og ellilífeyrir, að viðbættum áunnum stigum koma stig sem eru framreikningur til 67 ára aldurs.
Varasamt er að taka sérstakt dæmi um útreikning á örorkulífeyri þar sem hann er nokkuð flókinn og einstakir útreikningar eiga einungis við nákvæmlega þá einstaklinga en ekki aðra.
Makalífeyrir
Við andlát sjóðsfélaga öðlast maki hans rétt til makalífeyris. Fullur makalífeyrir greiðist í 3 ár og hálfur í 2 ár. Makalífeyrir greiðist alltaf þar til yngsta barn er orðið 19 ára. Maki sem orðinn er 50 ára við andlát sjóðsfélaga fær hálfan makalífeyri til andláts. Ef maki er a.m.k. 50% öryrki er makalífeyrir greiddur til 67 ára aldurs.
Upphæð makalífeyris er reiknuð út með sama hætti og ellilífeyrir, að viðbættum áunnum stigum koma stig sem eru framreikningur til 67 ára aldurs. Margföldunarstuðull fyrir makalífeyrir er 0,7 og því er upphæð hans um helmingur af ellilífeyri.
Barnalífeyrir
Barnalífeyrir greiðist til þeirra sem fá greiddan örorku- eða makalífeyri að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Barnalífeyrir til makalífeyrisþega eru u.þ.b. kr. 14.000 og örorkulífeyrisþega u.þ.b. kr. 8.500 á mánuði með hverju barni yngra en 18 ára.
Frjáls viðbótarsparnaður - ákvörðun hvers félagsmanns
Félagsmenn geta ákveðið að auka lífeyrissréttindi sín með frjálsum lífeyrissparnaði (séreignarsparnaði). Gerður samningur við vörsluaðila lífeyrissparnaðar (lífeyrissjóði, banka eða fjármálafyrirtæki) og greiðir þá starfsmaðurinn 2 - 4% af launum sínum og launagreiðandi greiðir í samræmi við kjarasamninga 2% mótframlag.
Framlag starfsmanns dregst frá stofni til staðgreiðslu en lífeyrissparnaðurinn skattast þegar hann er greiddur út. Viðbótarsparnaður er séreign hvers starfsmanns og erfist því í samræmi við lög þar um.
Félagsmaður sem á viðbótarlífeyrissparnað ákveður sjálfur hvernig endurgreiðslu/útborgun á honum er háttað, þó eru nokkrar reglur sem varða lágmarkstíma og lágmarksaldur skv. eftirfarandi:
Félagsmaður verður að vera 60 ára þegar greiðsla hefst og verður þá að vara í 7 ár, því getur greiðslu úr séreignasparnaði fyrst lokið við 67 ára aldur.
Félagsmaður sem verður fyrir varanlegu heilsutjóni (örorku) getur þá fengið greiðslu úr sínum séreignarsjóði og getur greiðslu til hans lokið á 7 árum, eða á þeim tíma sem vantar í 67 ára aldur.
Við andlát félagsmanns erfist séreignarsparnaður hans til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga.
Eftirlifandi maki fær sinn hluta greiddan á sjö árum eða á þeim tíma, sem makann vantar á 67 ára aldur við andlát sjóðfélagans.
Hlut barns undir 18 ára aldri skal greiða með jöfnum greiðslum á fimm árum eða á þeim árum sem upp á vantar að barnið nái 18 ára aldri.
Rétt er að hvetja félagsmenn til að taka þátt í viðbótarlífeyrissparnaði, enda veitir það þeim viðbótar lífeyrissréttindi og hærri laun.
Við ákvörðun um, við hvaða aðila er gerður samningur um viðbótarsparnað, er rétt að bera saman ávöxtun sjóðanna að teknu tilliti til áhættu við þær fjárfestingar sem viðkomandi sjóður stendur í, rekstrarkostnað þeirra (m.a. kostnaður og úttektargjald), þjónustu þeirra og ábyrgð/þjónustu vörsluaðila ef laungreiðandi stendur ekki skil á iðgjaldi og mótframlagi í samræmi við samning eða verður gjaldþrota.
Tilkynningar
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
3. mars 2010 - kl. 12:13
Framsýn fundar 10. mars.
Fundur verður í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar miðvikudaginn 10. mars kl. 17:30 í fundarsal félagsins.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
2. Inntaka nýrra félaga
3. Fjárhagsáætlun Skrifstofu stéttarfélaganna
4. Breytingar á fundaraðstöðu
5. Fundur um skipulagsmál ASI
6. Fundur um lífeyrissjóðsmál á vegum ASÍ
7. Fundur með atvinnuleitendum í N-Þing
8. Tímasetning aðalfundar
9. Mótmælafundur á Austurvelli
10. Orlofskostir sumarið 2010
11. Þjóðfundur á Akureyri
12. Heimsókn frá AOF í Noregi
13. Önnur mál
2. mars 2010 - kl. 15:45
Trúnaðarmannanámskeið í apríl
Við ætlum að halda áfram metnaðarfullri trúnaðarmannafræðslu á vegum Framsýnar. Næsta námskeið verður haldið á Illugastöðum 15 og 16. apríl í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu. Reiknað er með að menn gisti eina nótt nema þeir sem koma lengra að. Þeim stendur til boða að gista tvær nætur.
Við munum byggja námskeiðið upp með skemmtilegum fyrirlestrum og hópavinnu auk þess sem við munum fara í óvissuferð um Fnjóskadalinn undir leiðsögn huldumanna úr dalnum.
Skráning á námskeiðið er hafin á Skrifstofu stéttarfélaganna. Mikilvægt er að sem flestir trúnaðarmenn skrái sig á námskeiðið. Skráning stendur yfir til 20. mars 2010.
Endilega hafið samband ef frekari upplýsingar vantar.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 500,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.