Sumarhús, íbúðir, ódýr hótelgisting um allt land, farfuglaheimili og fleira
-fjölbreyttir orlofskostir fyrir félagsmenn
Samstarf félaganna – fjölbreyttir möguleikar
Með samstarfi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum Framsýnar, stéttarfélags, Þingiðnar, Starfsmannafélags Húsavíkur og Verkalýðsfélags Þórshafnar býðst félagsmönnum nú mikið úrval af orlofskostum.
Kostir í boði sumarið 2010:
Endurgreiðsla á gistikostnaði á tjaldsvæðum
Orlofshús og -íbúðir
Líkt og undanfarin ár bjóða félögin upp orlofshús og íbúðir. Leigugjald fyrir orlofshús er kr. 17.000 á viku. Almennir skiptidagar eru föstudagar.
Í sumar stendur félagsmönnum til boða eftirtalin orlofshús og -íbúðir:
• Orlofsíbúðir Freyjugötu Reykjavík

Stéttarfélögin bjóða félagsmönnum sínum upp á gistingu í 3 orlofsíbúðum við Freyjugötu í Reykjavík. Íbúðirnar eru vel staðsettar, t.d. í göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur og Landsspítalanum.
Á 1. hæð er íbúð með tveim svefnherberjum. Svefnherbergi með hjónarúmi og barnaherbergi með koju. Auk þess eru tvær aukadýnur í íbúðinni.
Á 2. hæð er íbúð með eitt svefnherbergi með hjónarúmi. Í stofu er tvíbreiður svefnsófi og tvær aukadýnur.
Á 3. hæð er stúdioíbúð, þannig að eldhús, stofa og svefnaðstaða er í sama rýminu. Í íbúðinni er hjónarúm, svefnsófi og tvær aukadýnur.
• Orlofsíbúð Asparfelli Reykjavík

Í Breiðholtinu er boðið upp á íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Í íbúðinni er 1 svefnherbergi með hjónarúmi, tvíbreiður svefnsófi er í stofu og tvær aukadýnur.
Í Asparfellinu eru stutt í þjónustu, t.d. er fjöldi verslana rétt við íbúðina.
• Orlofshús Stóruskógum

Í orlofsbyggðinni Stóruskógum, sem staðsett er rétt við Munaðarnes, er boðið upp á tvö 53 m2 orlofshús. Í húsunum eru þrjú svefnherbergi, eitt með hjónarúmi og hin tvö með koju. Við húsin eru heitur pottir og stór verönd.
Frá Stóruskógum er stutt á flesta áfangastaði á Suð-vesturlandi og Snæfellsnesi.
• Orlofshús Kjarnaskógi

Í Kjarnaskógi við Akureyri er boðið upp á vel búið 53 m2 orlofshús. Í húsinu er þrjú svefnherbergi, eitt með hjónarúmi og tveim aukadýnum og hin tvö með koju. Við húsið er góð verönd og heitur pottur.
• Orlofshús Illugastöðum

Í boði er nýlegt 48 m2 orlofshús í orlofsbyggðinni Illugastöðum í Fnjóskadal. Byggðin er staðsett á milli Húsavíkur og Akureyrar.
Í húsinu er tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og hitt með tveim kojum. Í stofu er svefnsófi. Við húsið er góð verönd með nýjum heitum potti.
Á Illugastöðum er gott leiksvæði fyrir alla fjölskylduna og sundlaug með heitum pottum.
• Orlofshús Öxarfirði

Í Dranghólaskógi við Lund bjóða félögin upp á orlofshús allan ársins hring. Húsið er vel búið með þrem svefnherberjum, einu með hjónarúmi og hinum með kojum. Í húsinu eru tvær aukadýnur. Í ár verður húsið í leiguskiptum frá 28. maí til 27. ágúst en hægt er að fá húsið leigt utan þess tíma.
• Orlofshús Eiðum- MIKIÐ ENDURBÆTT

Í orlofsbyggðinni Eiðum, sem er 14 km norðan við Egilsstaði, er boðið upp á 54 m2 orlofshús með þrem svefnherbergjum. Í einu herbergjanna er hjónarúm og tvær aukadýnur en kojur í hinum. Húsið stendur við Eiðavatn og fylgir því aðgangur að árabát.
• Orlofshús Einarsstöðum

Í orlofsbyggðinni Einarsstöðum, sem er 10 km sunnan við Egilsstaði, er boðið upp á 45 m2 orlofshús með þrem svefnherbergjum. Í einu herbergjanna er hjónarúm og aukarúm en kojur í hinum. Í byggðinni eru leiktæki fyrir börn.
Einarsstaðir eru sérstaklega vel staðsett m.t.t. ferðalaga á Austurlandi.
• Orlofshúsið Mörk Grímsnesi

Orlofshúsið er um 52 m2 að stærð með þremur svefnherberjum. Í einu þeirra er hjónarúm og efri koja en í hinum eru kojur. Við húsið er góð verönd og heitur pottur. Húsið er vel staðsett um 15 km frá Selfossi, vestarlega í Grímsnesinu við Sogið.
• Orlofshúsið Útgarður Grímsnesi

Í boði er nýtt stórt orlofshús, um 100 m2 (svefnloft innifalið). Í húsinu eru tvö svefnherbergi með hjónarúmum og í öðru þeirra er aukarúm. Auk þess er í húsinu 28 m2 svefnloft með tveim rúmum og 4 dýnum.
Við húsið er góð verönd og heitur pottur. Húsið er vel staðsett um 18 km frá Selfossi, vestarlega í Grímsnesinu skammt frá Sogsvirkjunum.
• Orlofshús Ölfusborgum

Í boði er orlofshús í orlofsbyggðinni Ölfusborgum við Hveragerði. Húsið er 55 m2 þrjú svefnherbergi. Í einu þeirra er hjónarúm en í hinum eru kojur. Góð verönd og heitur pottur er við húsið.
Orlofshús í Súðavík - NÝTT

Í boði er 90 m2 sumarhús í útjaðri Súðavíkur. Um er að ræða snyrtilegt einbýlishús með fjórum svefnherbergjum. Í þremur herbergjum eru tvíbreið rúm og eitt herbergi með einbreiðu rúmi. Stutt er í skemmtilegar og athyglisverðar gönguleiðir og stutt keyrsla til allra helstu áfangastaða við Ísafjarðardjúp. Um 20 km akstur er út á Ísafjörð, höfuðstað Vestfjarða.
• Reykingar og húsdýr
Fyrir tveim árum var ákveðið að banna reykingar í sumarhúsum og íbúðum á vegum félaganna. Þetta var gert til að verða við óskum fjölda félagsmanna sem reykja ekki og kæra sig illa við að vera í tóbaksreyk. Félagsmenn eru hvattir til að virða þetta bann.
Húsdýr eru ekki leyfð í orlofshúsum og íbúðum.

Hótelgisting á Eddu
Félagsmönnum býðst gisting á 13 Edduhótelum sem staðsett eru um allt land. Hótelin eru: ML Laugarvatni, IKI Laugarvatni, Skógar, Nesjaskóli, Neskaupsstaður, Egilsstaðir, Eiðar, Akureyri, Stórutjarnir, Vík, Laugarbakki, Sælingsdalur og Ísafjörður.
Félagsmenn kaupa á Skrifstofu stéttarfélaganna gistiávísun fyrir uppbúið tveggja manna herbergi með handlaug og bóka sér síðan gistingu þar sem þeir kjósa. Heimilt er að hafa með sér börn án sérstaks aukagjalds ef viðkomandi hefur með sér rúmföt fyrir þau. Hótelið leggur til dýnur. Verð fyrir gistinóttina fyrir fjölskylduna er kr. 5.000,-. Athugið að morgunverður er ekki innifalinn og misjafnt framboð er hjá einstökum hótelum eftir tímabilum.
Nánari upplýsingar á www.hoteledda.is
Hótel Keflavík

Félagsmönnum býðst ódýr gisting á Hótel Keflavík, sem er góður kostur fyrir þá sem eru að ferðast um Keflavíkurflugvöll.
Félagsmenn kaupa gistiávísun á skrifstofu stéttarfélaganna og bóka gistingu á hótelinu. Í boði er einmennings-, tveggja manna- og fjölskylduherbergi. Félögin niðurgreiða einnig gistinóttina um kr. 2.000 fyrir hvern fullgildan félagsmann.
Morgunverður er veittur árla morguns fyrir gesti hótelsins sem þurfa að fara snemma í flug og er þeim síðan boðinn akstur á flugstöðina og geymsla á bílnum meðan dvalið er erlendis endurgjaldslaust.
Nánari upplýsingar á www.hotelkeflavik.is
Gisting í farfuglaheimilum
Félagsmönnum og fjölskyldum þeirra býðst gistingu á farfuglaheimilum en þau eru 34 og staðsett um allt land.
Þeir sem kjósa að gista á farfuglaheimilum fá aðgang að rúmi, sæng kodda, snyrtingu, baðaðstöðu og gestaeldhúsi. Algengast er að ferðamenn hafi með sér sængurföt eða svefnpoka. Víða er hægt að leigja sængurföt og kaupa morgunverð. Yfirleitt er aukagjald fyrir þá sem vilja sér herbergi.
Gistiávísanir fyrir farfuglaheimili er hægt að fá á Skrifstofu stéttarfélaganna. Allar nánari upplýsingar eru veittar þar eða á heimasiðu farfugla www.hostel.is eða á skrifstofu þeirra í síma 553-8110.

Útilega í boði þíns stéttarfélags
Félagmönnum og fjölskyldum þeirra geta nú sótt um styrk vegna gistingar á tjaldstæðum og við kaup á útilegukortinu. Það gerist þannig að félagsmenn og fjölskyldur þeirra fara með sitt tjald, tjaldvagn, fellihýsi, hjólhýsi eða annan búnað á tjaldsvæði innanland, fá löglegan reikning (númeraður reikningur með kennitölu söluaðila og kaupanda þjónustu), framvísa síðan reikningnum á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá endurgreiðslu fyrir hluta upphæðarinnar.
Skilyrði fyrir þessari greiðslu er að félagsmaður sé í a.m.k. 50% starfi, sé fullgildur félagsmaður og hafi greitt félagsgjöld í a.m.k. 3 mánuði.
Tilkynningar
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.