Félagsmenn
sem missa atvinnu sína geta leitað til Vinnumálastofnunar á
norðurlandi eystra og fengið þar allar upplýsingar
um atvinnuhorfur á vinnumarkaði og laus störf. Ef
ekkert starf er laust fylla þeir út umsókn um
atvinnu og umsókn um atvinnuleysisbætur. Meðan
atvinnuleysi varir skráir viðkomandi sig vikulega, nema
samningur hafi verið gerður um annað við Svæðisvinnumiðlunina.
Um markmið og hlutverk Svæðisvinnumiðlunarinnar
er kveðið á um í lögum
um vinnumarkaðsaðgerðir.
Aðalskrifstofa Svæðisvinnumiðlunarinnar er á Skipagötu 14 Akureyri sími 460-5100, auk þess er skrifstofa á Garðarsbraut 26 á Húsavík 464-1111. Skráningarstaðir eru á skrifstofum Skútustaðahrepps sími 464-4163, Öxafjarðarhrepps sími 465-2188 og Þórshafnarhrepps sími 468-1220.
Þjónusta við atvinnuleitendur
Svæðisvinnumiðlunin þjónustar
atvinnuleitendur með ýmsu móti og hafa atvinnuleitendur
á svæðinu aðgang að atvinnuleitarfulltrúa
og starfs- og námsráðgjöfum. Þótt
þeir séu staðsettir að mestu á Akureyri
er hægt að fá viðtöl við þá
á öllum skráningarstöðunum.
Almenn vinnumiðlun
Starfsmenn vinnumiðlunar hafa upplýsingar
um laus störf og miðla þeim til atvinnuleitenda auk
þess sem þeir þjónusta fyrirtæki
í leit af starfsmönnum.
EES - vinnumiðlun
Þeir sem eru í atvinnuleit
utan Íslands geta fengið upplýsingar um laus störf
á EES svæðinu (http://www.vinnumalastofnun.is/ees/tenglar.html)
hjá starfsmönnum Svæðisvinnumiðlunar.
Einnig skrá þeir atvinnuleitendur í atvinnuleit
á EES svæðinu ef þeir óska.
Svæðisvinnumiðlun býr einnig yfir upplýsingum
um lög og reglur sem gilda á vinnumarkaði á
EES svæðinu.
Ráðgjöf um starf og nám
Hjá Svæðisvinnumiðlun
starfa ráðgjafar sem veita starfs- og námsráðgjöf
auk þess sem þeir kynna úrræði fyrir
atvinnulausa sem geta verið námskeið, líkamrækt,
sund, starfsþjálfun, starfskynning og reynsluráðning.
Svæðisvinnumiðlun styrkir fólk á atvinnuleysisbótum
til að sækja námskeið, sem til þess eru
fallin að auka atvinnulíkur þeirra.
Kjósi atvinnuleitandi að fara í atvinnuleit á annað svæði eða erlendis, getur hann sótt um leyfi til slíks til Svæðisvinnumiðlunar.
Atvinnuleysisbætur
Félagsmaður sem skráir
sig atvinnulausan á rétt á atvinnuleysisbótum.
Ákvörðun um atvinnuleysisbætur fer fram hjá
Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta N.-eystra sem starfar
eftir lögum
um atvinnuleysistryggingar.
Almennt fer réttur til atvinnuleysisbóta eftir starfi
s.l. 12 mánuði og eru atvinnuleysisbætur greiddar
í hlutfalli við starfshlutfall á þeim tíma.
Þegar félagsmaður hefur ekki verið á
vinnumarkaði um stundarsakir s.s. vegna heimilisaðstæðna,
veikinda og fæðingarorlofs er heimilt að lengja viðmiðunartímabil
og skilar hann þá upplýsingum um starf s.l.
12 mánuði sem hann var í starfi en að hámarki
36 mánuði aftur í tímann.
Fullar atvinnuleysisbætur eru kr. 3.574,- hvern virkan dag
og kr. 143,- með hverju barni á dag.
Þeir sem telja sig ekki fá úrskurðaðar réttar atvinnuleysisbætur geta skotið máli sínu til Úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta. Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsavík (kuti@framsyn.is) aðstoðar þá félagsmenn sem telja sig ekki fá réttar atvinnuleysisbætur.
Munið að forsenda fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta er að skrá sig í atvinnuleit og atvinnuleysisbætur greiðast frá fyrsta skráningardegi. Því er rétt að hvetja þá sem verða atvinnulausir til að skrá sig á fyrsta degi atvinnuleysis.
Tilkynningar
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
3. mars 2010 - kl. 12:13
Framsýn fundar 10. mars.
Fundur verður í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar miðvikudaginn 10. mars kl. 17:30 í fundarsal félagsins.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
2. Inntaka nýrra félaga
3. Fjárhagsáætlun Skrifstofu stéttarfélaganna
4. Breytingar á fundaraðstöðu
5. Fundur um skipulagsmál ASI
6. Fundur um lífeyrissjóðsmál á vegum ASÍ
7. Fundur með atvinnuleitendum í N-Þing
8. Tímasetning aðalfundar
9. Mótmælafundur á Austurvelli
10. Orlofskostir sumarið 2010
11. Þjóðfundur á Akureyri
12. Heimsókn frá AOF í Noregi
13. Önnur mál
2. mars 2010 - kl. 15:45
Trúnaðarmannanámskeið í apríl
Við ætlum að halda áfram metnaðarfullri trúnaðarmannafræðslu á vegum Framsýnar. Næsta námskeið verður haldið á Illugastöðum 15 og 16. apríl í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu. Reiknað er með að menn gisti eina nótt nema þeir sem koma lengra að. Þeim stendur til boða að gista tvær nætur.
Við munum byggja námskeiðið upp með skemmtilegum fyrirlestrum og hópavinnu auk þess sem við munum fara í óvissuferð um Fnjóskadalinn undir leiðsögn huldumanna úr dalnum.
Skráning á námskeiðið er hafin á Skrifstofu stéttarfélaganna. Mikilvægt er að sem flestir trúnaðarmenn skrái sig á námskeiðið. Skráning stendur yfir til 20. mars 2010.
Endilega hafið samband ef frekari upplýsingar vantar.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 500,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.