Launanefnd sveitarfélaga hefur í samvinnu við viðsemjendur innleitt samræmt starfsmatskerfi sem nefnist SAMSTARF. Kerfið sem varð fyrir valinu var hannað í Bretlandi 1997 og hefur gefið góða raun í fjölmörgum sveitarfélögum þar.
Þeir starfsmenn sveitarfélaga sem eru félagar í Framsýn- stéttarfélagi Þingeyinga og Starfsmannafélags Húsavíkur vinna flestir eftir þessu starfsmati sem verið hefur í notkun frá árinu 2004. Starfsmat er kerfi sem miðast við að raða starfsfólki í launaflokka eftir umfangi starfa þar sem m.a. er tekið tillit til ábyrgðar á fólki, búnaði og fjármunum, líkamlegra og hugrænna krafna auk fleiri þátta.
Nánar má lesa um starfsmatið á heimasíðu Launanefndar sveitarfélaga: www.samband.is
Hér má nálgast lista yfir þau störf í starfsmatinu sem unnið er eftir á félagssvæði Framsýnar- stéttarfélag Þingeyinga og Starfsmannafélags Húsavíkur.
Í janúar 2007 hófst vinna við endurskoðun á starfsmatinu á landsvísu og sá starfsfólk Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík um framkvæmd hennar í sveitarfélögunum Norðurþingi, Skútustaðahreppi, Þingeyjarsveit, Aðaldælahreppi auk þess að koma að endurskoðun starfsmatsins hjá Langanesbyggð. Vinnan fólst í því að yfirfara öll störf sem unnin eru hjá sveitarfélögunum til að meta hvort að þeim sé rétt raðað í starfsmatinu og þar af leiðandi hvort verið sé að greiða laun í samræmi við umfang starfanna. Afraksturinn var sá að tekin var ákvörðun um að óska eftir því að 16 störf yrðu tekin til endurskoðunar hjá Launanefnd sveitarfélaganna.
Þegar litið er til landsins í heild bárust um 200 beiðnir um og varð niðurstaðan sú að í 30 tilfellum samþykkti Launanefndin breytingar á störfum og að auki urðu til 15 ný starfsheiti.
Tilkynningar
1. júní 2010 - kl. 14:05
Opnunartími í sumar
Frá 1. júní verður Skrifstofa stéttarfélaganna opin frá kl. 08:00 til 16:00 alla virka daga. Þessi opnunartími gildir til 31. ágúst 2010.
19. maí 2010 - kl. 09:28
Orlofsuppbót 2010
Full orlofsuppbót árið 2010 er kr. 25.800,-
Gildir almennt fyrir félaga í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur.
Full orlofsuppbót félaga í deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar er kr. 19.500,-
Misjafnt er á milli kjarasamninga hvenær greiða skal orlofsuppbótina og með hvaða hætti hún er reiknuð út fyrir þá sem eru í hlutastörfum eða hafa starfað hluta úr ári. Nánari upplýsingar eru gefnar á Skrifstofu stéttarfélaganna í síma: 464-6600.
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 600,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.