Skrifstofa stéttarfélaganna
Garðarsbraut 26
640 Húsavík
Sími: 464-6600
Fax: 464-6601
Skrifstofa stéttarfélaganna er staðsett við Garðarsbraut 26, 640 Húsavík.
Skrifstofa stéttarfélaganna er opin alla virka daga kl. 08:00-17:00 á veturna og kl. 08:00-16:00 á sumrin. Opið er í hádeginu.
Skrifstofa sími 464-6600, fax 464-6601.
Utan afgreiðslutíma er hægt að hafa samband við Aðalstein í farsíma 864-6604 og Snæbjörn í farsíma 864-6602.
Að Garðarsbraut 26 er félags- og fundaraðstaða félaganna. Þar hafa félagsmenn aðgang að netttengdri tölvu (salur@framsyn.is).
Framsýn, stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur, Þingiðn og Verkalýðsfélag Þórshafnar eiga aðild að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík.
Skrifstofa stéttarfélaganna annast alla þjónustu fyrir félagsmenn, svo sem upplýsingagjöf og aðstoð vegna kaup og kjaramála, upplýsingar um réttindi vegna veikinda og slysa, útleigu orlofsíbúða og orlofshúsa. Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum, aðstoð og ráðgjöf vegna alls sem tengist þátttöku á vinnumarkaði.
Skrifstofa stéttarfélaganna annast rekstur og bókhald stéttarfélaganna í samráði við stjórnir þeirra.
Skrifstofa stéttarfélaganna annast innheimtu á félagsgjöldum og skyldum gjöldum. Félagsgjald er 1% af heildarlaunum og skila launagreiðendur því ásamt skyldum gjöldum (sjúkrasjóðs-, orlofssjóðs- og starfsmenntasjóðsgjöldum) til félaganna. Bankareikningur til greiðslu þessara gjalda er í Landsbanka Íslands hf. á Húsavík 192-26-21 kt. 570785-0879.
|
Aðalsteinn Á. Baldursson, rekstrarstjóri Skrifstofu stéttarfélaganna. Ber ábyrgð á rekstri
skrifstofunnar. Formaður Framsýnar- stéttarfélags. Hefur auk þess umsjón
með kjarasamningagerð, túlkun kjarasamninga, fræðslumálum, Fréttabréfi |
Snæbjörn Sigurðarson,
skrifstofustjóri.
Hefur umsjón með fjármálum, rekstri, bókhaldi og yfirumsjón með
orlofsmálum stéttarfélaganna.
Beinn sími: 464-6602
Farsími: 864-6602
Netfang: snabbi@framsyn.is
Jónína Hermannsdóttir
Sér um innheimtu og skráningu stéttarfélagsgjalda, starfsmenntasjóðsgjalda og útleigu orlofshúsa.
Beinn sími: 464-6605
Netfang: nina@framsyn.is
Hilmar V. Gunnarsson
Starfar að málefnum atvinnuleytenda á félagssvæðinu.
Beinn sími: 464-6603
Netfang: framsyn@framsyn.is

Ágúst Sigurður Óskarsson, ráðgjafi.
Ráðgjafi hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði.
Netfang: virk@framsyn.is
Olga Gísladóttir
Starfsmaður Framsýnar- stéttarfélags í Öxarfirði.
Svava Árnadóttir
Starfsmaður Framsýnar- stéttarfélags á Raufarhöfn.
Þóranna Jónsdóttir
Annast ræstingar og þrif á Skrifstofu stéttarfélaganna.
Tilkynningar
8. mars 2010 - kl. 08:22
Ræða formanns Austurvelli
Austurvöllur 1. hluti
Austurvöllur 2. hluti
Formaður Framsýnar í Silfri Egils
3. mars 2010 - kl. 12:13
Framsýn fundar 10. mars.
Fundur verður í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar miðvikudaginn 10. mars kl. 17:30 í fundarsal félagsins.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
2. Inntaka nýrra félaga
3. Fjárhagsáætlun Skrifstofu stéttarfélaganna
4. Breytingar á fundaraðstöðu
5. Fundur um skipulagsmál ASI
6. Fundur um lífeyrissjóðsmál á vegum ASÍ
7. Fundur með atvinnuleitendum í N-Þing
8. Tímasetning aðalfundar
9. Mótmælafundur á Austurvelli
10. Orlofskostir sumarið 2010
11. Þjóðfundur á Akureyri
12. Heimsókn frá AOF í Noregi
13. Önnur mál
2. mars 2010 - kl. 15:45
Trúnaðarmannanámskeið í apríl
Við ætlum að halda áfram metnaðarfullri trúnaðarmannafræðslu á vegum Framsýnar. Næsta námskeið verður haldið á Illugastöðum 15 og 16. apríl í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu. Reiknað er með að menn gisti eina nótt nema þeir sem koma lengra að. Þeim stendur til boða að gista tvær nætur.
Við munum byggja námskeiðið upp með skemmtilegum fyrirlestrum og hópavinnu auk þess sem við munum fara í óvissuferð um Fnjóskadalinn undir leiðsögn huldumanna úr dalnum.
Skráning á námskeiðið er hafin á Skrifstofu stéttarfélaganna. Mikilvægt er að sem flestir trúnaðarmenn skrái sig á námskeiðið. Skráning stendur yfir til 20. mars 2010.
Endilega hafið samband ef frekari upplýsingar vantar.
12. febrúar 2010 - kl. 12:02
Skólastjórnendur athugið
Að venju vilja stéttarfélögin bjóða grunnskólum í Þingeyjarsýslum upp á fræðslu um markmið og tilgang stéttarfélaga. Félögin hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við grunnskólana á félagssvæðinu og komið nokkuð reglulega í heimsóknir.
Fræðslan sem við bjóðum upp á er ætluð nemendum í 10. bekk og neðar óski skólarnir eftir því.
Ef þið hafið áhuga fyrir því að fá okkur í heimsókn í vetur eða vor, vinsamlegast hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna þegar ykkur hentar.
6. janúar 2010 - kl. 11:02
15% afsláttur í Jarðböðin
Samkvæmt samkomulagi eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í Jarðböðin í Mývatnssveit. Áður er farið er, þurfa félagsmenn að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá sérstök afsláttarkort. Góða skemmtun.
11. nóvember 2009 - kl. 09:31
Orlofsíbúð í boði á Akureyri
Framsýn hefur gengið frá samkomulagi við Verkalýðsfélag Akranes um afnot af orlofsíbúð sem er í eigu félagsins á Akureyri fyrir félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Samkomulagið gildir í vetur. Íbúðin er í Furulundi 8 og er endaíbúð á efri hæð. Hægt er að fá leigðar stakar nætur eða í lengri tíma. Það eru bara helgarnar sem leigjast út í heilu lagi. Vikuleigan er kr. 16.000. Helgarleigan (frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 14:00 á mánudegi) er kr. 10.000,-. Íbúðin er 53 fm, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og hægt er að fá gestarúm og barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél. Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut, Akureyri gegn framvísun leigusamnings. Áhugasömum er beint á að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Með þessu samkomulagi við Verkalýðsfélag Akraness er Framsýn að bæta enn frekar þjónustuna við félagsmenn. Það er jú markmiðið.
17. september 2009 - kl. 07:53
Íbúðir á Akureyri í boði fyrir félagsmenn
Stéttarfélögin hafa samið um aðgengi að tveimur íbúðum á Akureyri fyrir félagsmenn. Íbúðirnar eru í Hrísalundi. Nánari upplýsingar og leiguverð er á þessari slóð. http://lyngholt.is/ Þar er einnig hægt að bóka sig. Þá gefur Karen Rut Konráðsdóttir frekari upplýsingar í síma 468-1239 eða 897-5064.
2. maí 2007 - kl. 08:17
Góður afsláttur fyrir félagsmenn hjá Frumherja
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Frumherja um að veita félagsmönnum 15% afslátt af reglubundinni skylduskoðun ökutækja á þeirra vegum. Afslátturinn fæst gegn staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn. Áður en að félagsmenn láta skoða sína bíla þurfa þeir að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá vottorð um að þeir séu fullgildir félagsmenn. Þessi afsláttur gildir einnig fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar sem geta nálgast frekari upplýsingar á skrifstofu félagsins á Þórshöfn.
7. mars 2007 - kl. 09:42
Miðar í Hvalfjarðargöng til sölu
Stéttarfélögin hafa til sölu miða í Hvalfjarðargöngin fyrir félagsmenn. Verðið per. miða er kr. 500,-. Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar fá miðana á sama verði hjá skrifstofu félagsins á Þórshöfn.